Sálmarnir 26 - Biblían (2007)

1Davíðssálmur.

Lát mig ná rétti mínum, Drottinn,

því að ég geng fram í ráðvendni,

ég treysti Drottni og bifast ekki.

2Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig,

prófa nýru mín og hjarta.

3Því að ég hef gæsku þína fyrir augum

og geng í trausti til þín.

4Ég tek mér ekki sæti hjá lygurum

og umgengst ekki fláráða,

5ég hata söfnuð illvirkja

og sit ekki hjá óguðlegum.

6Ég þvæ hendur mínar í sakleysi

og geng í kringum altari þitt, Drottinn,

7til að láta lofsöng hljóma

og segja frá öllum máttarverkum þínum.

8Drottinn, ég elska húsið sem er bústaður þinn

og staðinn þar sem dýrð þín býr.

9Sviptu mér ekki burt með syndurum,

deyddu mig ekki með morðingjum

10sem hafa flekkaðar hendur

og hægri höndina fyllta mútufé.

11En ég geng fram í ráðvendni,

frelsa mig og líkna mér.

12Fótur minn stendur á sléttri grund,

ég vil lofa Drottin í söfnuðinum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help