1Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu.
2Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans en Kládíus hafði skipað svo fyrir að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Páll fór til þeirra
3og af því hann stundaði sömu iðn settist hann að hjá þeim og vann með þeim. Þeir voru tjaldgerðarmenn að iðn.
4Hann ræddi við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag og reyndi að sannfæra bæði Gyðinga og Grikki.
5Þegar þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu gaf Páll sig allan að boðun orðsins og vitnaði fyrir Gyðingum að Jesús væri Kristur.
6En er þeir snerust gegn honum og fóru að lastmæla hristi hann dustið af klæðum sínum og sagði: „Þið getið sjálfir ykkur um það kennt að þið farist. Ekki er mér um það að kenna. Upp frá þessu fer ég til heiðingjanna.“
7Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs er hét Títus Jústus og sótti samkundu Gyðinga. Hús hans var hjá samkunduhúsinu.
8Krispus samkundustjóri tók trú á Drottin og allt heimili hans og margir Korintumenn, sem heyrðu Pál tala, tóku trú og létu skírast.
9En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: „Óttast þú eigi, haltu ótrauður áfram að tala, þagna ekki.
10Ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein því að ég á margt fólk í þessari borg.“
11Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.
12En þegar Gallíón var landstjóri í Akkeu bundust Gyðingar samtökum gegn Páli, drógu hann fyrir dómstólinn
13og sögðu: „Maður þessi tælir menn til að dýrka Guð á þann hátt sem stríðir gegn lögmálinu.“
14Páll bjóst til að svara en þá sagði Gallíón við Gyðingana: „Væri hér um einhver lögbrot eða illvirki að ræða bæri mér að sinna ykkur, Gyðingar.
15En fyrst það eru þrætur um orð og nöfn og lögmál ykkar þá ráðið sjálfir fram úr því. Dómari í þeim sökum vil ég ekki vera.“
16Og hann rak þá burt frá dómstólnum.
17Þá tóku þeir allir Sósþenes samkundustjóra og fóru að berja hann fyrir framan dómstólinn og lét Gallíón sig það engu skipta.
Til Sýrlands18Páll var þar enn um kyrrt allmarga daga, kvaddi síðan bræðurna og systurnar og sigldi til Sýrlands og með honum Priskilla og Akvílas. Lét hann áður skera hár sitt í Kenkreu því að heit hafði hvílt á honum.
19Þau komu til Efesus. Þar skildi hann við þau en gekk sjálfur inn í samkunduhúsið og ræddi við Gyðinga.
20Þeir báðu hann að standa lengur við en hann varð ekki við því
21heldur kvaddi þá og sagði: „Ég skal koma aftur til ykkar ef Guð lofar.“ Síðan lét hann í haf frá Efesus,
22lenti í Sesareu, fór upp eftir til Jerúsalem og heilsaði söfnuðinum. Síðan hélt hann norður til Antíokkíu.
23Þegar hann hafði dvalist þar um hríð hélt hann af stað og fór eins og leið liggur um Galataland og Frýgíu og styrkti alla lærisveinana.
Apollós24En Gyðingur nokkur, Apollós að nafni, ættaður frá Alexandríu, kom til Efesus. Hann var maður vel máli farinn og fær í ritningunum.
25Hann hafði verið fræddur um veg Drottins og brennandi í andanum talaði hann og kenndi kostgæfilega um Jesú. Þó þekkti hann aðeins skírn Jóhannesar.
26Þessi maður tók nú að tala skörulega í samkunduhúsinu. Priskilla og Akvílas heyrðu til hans, tóku hann að sér og skýrðu nánar fyrir honum Guðs veg.
27Nú fýsti hann að fara yfir til Akkeu. Kristnir menn í Efesus rituðu lærisveinunum þar og hvöttu þá að taka honum vel. Hann kom þangað og varð til mikillar hjálpar þeim sem fyrir Guðs náð höfðu tekið trú því að
28hann hrakti skarplega rök Gyðinga í allra áheyrn og sannaði af ritningunum að Jesús væri Kristur.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.