Sálmarnir 55 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðsmaskíl.

2Hlýð, Guð, á bæn mína,

fel þig eigi þegar ég sárbæni þig.

3Hlusta og svara mér,

ég er órór og kveina,

4skelfingu lostinn yfir hrópum óvinarins,

ásókn hins óguðlega,

því að þeir steypa yfir mig ógæfu

og ofsækja mig grimmilega.

5Hjartað berst ákaft í brjósti mér,

dauðans angist kemur yfir mig.

6Ótti og skelfing nísta mig

og hryllingur fer um mig allan

7svo að ég segi: „Ó, að ég hefði vængi eins og dúfan,

þá mundi ég fljúga burt og finna hvíldarstað,

8mundi svífa langt burt,

vera um kyrrt í eyðimörkinni. (Sela)

9Ég mundi flýta mér að finna hæli

fyrir þjótandi vindum og veðri.“

10Sundra þeim, Drottinn, rugla mál þeirra

því að ég sé kúgun og deilur í borginni.

11Nótt sem dag ganga þær á múrnum umhverfis hana

en ranglæti og armæða eru þar inni fyrir.

12Glötun er inni í henni,

ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar

13því að það er eigi óvinur sem hæðir mig,

það gæti ég þolað,

og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig,

fyrir honum gæti ég farið í felur,

14heldur þú, jafningi minn,

vinur minn og félagi.

15Við vorum ástúðarvinir

er við gengum í mannþrönginni í hús Guðs.

16Dauðinn komi yfir þá,

stígi þeir lifandi niður til heljar

því að illskan á sér bústað í barmi þeirra.

17En ég hrópa til Guðs

og Drottinn mun hjálpa mér.

18Morgun, kvöld og miðjan dag

kveina ég og styn

og hann bænheyrir mig,

19hann endurleysir sál mína og gefur mér frið

frá þeim sem ráðast á mig

en mótstöðumenn mínir eru margir.

20Guð bænheyrir mig og auðmýkir þá,

hann sem hefur ríkt frá upphafi, (Sela)

því að þeir bæta eigi ráð sitt

og óttast eigi Guð.

21Fyrrum félagi minn lagði hendur á vini sína,

rauf sáttmálann sem hann hafði gert.

22Hálli en smjör er tunga hans

en ófriður í hjarta,

mýkri en olía eru orð hans

og þó sem brugðin sverð.

23Varpa áhyggjum þínum á Drottin,

hann mun bera umhyggju fyrir þér,

aldrei að eilífu

lætur hann réttlátan mann hrasa.

24En Guð, þú munt steypa þeim niður í grafardjúpið.

Morðingjar og svikarar ná ekki miðjum aldri

en ég treysti þér.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help