Esekíel 30 - Biblían (2007)

Dómur Drottins yfir Egyptalandi

1Orð Drottins kom til mín:

2Mannssonur, spá þú og seg: Svo segir Drottinn Guð:

Grátið og kveinið yfir þessum degi.

3Því að dagurinn er í nánd,

dagur Drottins er í nánd,

dagur dimmra skýja.

Hann verður endadægur þjóðanna.

4Sverð kemur gegn Egyptalandi

og Kús tekur að nötra

þegar hinir vegnu falla í Egyptalandi

og fjársjóðir landsins verða teknir

og grunnmúrar þess jafnaðir við jörðu.

5Fólkið frá Kús, Pút og Lúd,

hinar ólíkustu þjóðir, fólk frá Kúta

og fólk frá landinu, sem ég gerði sáttmála við,

mun falla fyrir sverðinu ásamt þeim.

6Svo segir Drottinn:

Þeir sem styðja Egypta munu falla,

hið mikilláta veldi þeirra mun hrapa.

Frá Migdól til Sýene

munu þeir falla fyrir sverði,

segir Drottinn Guð.

7Egyptaland verður auðn

meðal annarra eyddra landa

og borgir þess verða meðal borga í rústum.

8Þeir munu skilja að ég er Drottinn

þegar ég legg eld að Egyptalandi

og allir stuðningsmenn þess farast.

9Á þeim degi munu boðberar mínir halda af stað á skipum

til að skelfa hina áhyggjulausu íbúa í Kús.

Þeir verða gripnir skjálfta á degi Egyptalands,

því að hann mun koma.

10Svo segir Drottinn Guð:

Ég mun gera dýrð Egyptalands lýða að engu

með hendi Nebúkadresars,

konungs í Babýlon.

11Hann og her hans,

hinar grimmustu þjóðir,

verða sóttir til að eyða landið.

Þeir munu draga sverð úr slíðrum gegn Egyptalandi

og fylla landið vegnum mönnum.

12Ég mun þurrka upp kvíslar Nílar

og selja landið illmennum í hendur.

Ég mun gereyða landið og allt, sem þar er,

með höndum erlendra manna.

Ég, Drottinn, hef talað.

13Svo segir Drottinn Guð:

Ég mun eyða skurðgoðunum,

láta guðina í Nóf líða undir lok.

Brátt verður enginn þjóðhöfðingi í Egyptalandi.

Ég mun senda ótta yfir Egyptaland.

14Ég mun eyða Patrós,

leggja eld að Sóan,

fullnægja refsidómum á Nó.

15Ég mun hella heift minni yfir Sín,

virki Egyptalands,

og eyða dýrðinni í Nó.

16Ég mun leggja eld að Egyptalandi,

Sín mun engjast sundur og saman.

Þeir munu brjóta sér leið inn í Nó

og fjandmenn ráðast á Nó um hábjartan dag.

17Ungmenni frá Ón og Píbeset munu

falla fyrir sverðinu

og íbúarnir munu reknir í útlegð.

18Í Takpankes verður dagurinn dimmur

þegar ég brýt þar veldissprota Egyptalands,

þá mun hið mikilláta veldi þess líða undir lok,

skýjaþykkni mun hylja landið

og dætur þess fara í útlegð.

19Þannig fullnægi ég refsidómnum yfir Egyptalandi,

þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.

20Á sjöunda degi fyrsta mánaðar ellefta ársins kom orð Drottins til mín:

21Mannssonur, ég hef brotið handlegg faraós, konungs í Egyptalandi. Hvorki verður bundið um hann né hann vafinn umbúðum til að græða hann og styrkja svo að hann geti aftur gripið til sverðsins.

22Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Nú held ég gegn faraó, konungi Egyptalands: Ég mun brjóta báða handleggi hans, bæði þann heila og hinn brotna, og slá sverðið úr hendi hans.

23Ég mun tvístra Egyptum á meðal þjóðanna og dreifa þeim um löndin.

24Ég mun styrkja handleggi konungsins í Babýlon og fá honum sverð mitt í hönd. En handleggi faraós mun ég brjóta og hann mun stynja frammi fyrir konungi Babýlonar eins og helsærðir menn.

25Ég mun styrkja handleggi konungsins í Babýlon en handleggir faraós munu hanga máttvana. Þegar ég fæ konunginum í Babýlon sverð mitt í hendur, og hann reiðir það gegn Egyptalandi, munu þeir skilja að ég er Drottinn.

26Ég mun tvístra Egyptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help