Síðari Samúelsbók 1 - Biblían (2007)

Davíð fréttir dauða Sáls

1Þegar Sál var allur sneri Davíð heim og hafði þá unnið sigur á Amalekítum. Hann var tvo daga í Síklag.

2Á þriðja degi kom maður frá herbúðum Sáls. Hann var í rifnum fötum og með mold á höfði. Þegar hann kom til Davíðs fleygði hann sér flötum og sýndi honum lotningu.

3„Hvaðan kemur þú?“ spurði Davíð. Hann svaraði: „Ég slapp úr herbúðum Ísraels.“

4„Hvað gerðist?“ spurði Davíð. „Segðu mér frá.“ Maðurinn svaraði: „Herinn flýði úr bardaganum þegar margir voru fallnir. Sál og Jónatan, sonur hans, eru líka fallnir.“

5Þá spurði Davíð unga manninn sem flutti fréttirnar: „Hvernig veistu að Sál og Jónatan, sonur hans, eru fallnir?“

6Sendiboðinn ungi sagði: „Ég átti leið um Gilbóahálendið. Þar sá ég Sál styðjast við spjót sitt og þrengdu stríðsvagnar og riddarar að honum.

7Þegar hann sneri sér við kom hann auga á mig, kallaði til mín og ég svaraði.

8Hann spurði: Hver ert þú? Og ég svaraði: Ég er Amalekíti.

9Þá sagði hann við mig: Komdu hingað og banaðu mér. Ég er enn á lífi en mér sortnar fyrir augum.

10Ég gekk þá til hans og vann á honum því að ég vissi að hann gat ekki lifað eftir ósigur sinn. Síðan tók ég kórónuna, sem hann bar á höfði, og armbandið, sem hann hafði um handlegg sér, og nú færi ég þér, herra minn, þessa gripi.“

11Þá þreif Davíð í klæði sín og reif þau og allir, sem hjá honum voru, fóru eins að.

12Þeir syrgðu, grétu og föstuðu til kvölds vegna Sáls og Jónatans, sonar hans, og vegna lýðs Drottins og konungsættar Ísraels sem var fallin fyrir sverði.

13Davíð spurði unga manninn sem flutti honum fréttirnar: „Hvaðan ert þú?“ Hann svaraði: „Ég er sonur Amalekíta sem býr hér og er aðkomumaður.“

14Þá sagði Davíð við hann: „Hvernig dirfðistu að lyfta hendi til að deyða Drottins smurða?“

15Síðan kallaði Davíð á einn af mönnum sínum og sagði: „Komdu og veittu honum banahögg,“ og hann hjó hann til bana.

16Davíð hafði sagt við sendiboðann: „Blóðsekt þín kemur yfir sjálfan þig því að þú vitnaðir með eigin orðum gegn þér þegar þú sagðir: Ég hef fellt Drottins smurða.“

Harmljóð Davíðs um Sál og Jónatan

17Þetta harmljóð flutti Davíð eftir Sál og Jónatan, son hans,

18og bauð að bogakvæðið skyldi kennt Júdamönnum. Það er skráð í Bók hins réttláta.

19Sæmd þín, Ísrael,

liggur vegin á hæðum þínum.

Hetjurnar eru fallnar.

20Skýrið ekki frá því í Gat,

boðið það ekki á götum Askalon

svo að dætur Filistea fagni ekki,

dætur óumskorinna gleðjist ekki.

21Þér Gilbóafjöll,

hvorki drjúpi á ykkur dögg né regn,

þér fjöll dauðans.

Því að þar féll skjöldur kappanna,

skjöldur Sáls sem ekki

mun framar fægður með olíu.

22Bogi Jónatans sneri aldrei heim

nema stokkinn blóði fallinna,

ataður feiti kappa,

og sverð Sáls geigaði aldrei.

23Sál og Jónatan,

dáðir og elskaðir í lífi sínu,

urðu ekki aðskildir í dauðanum.

Þeir voru skjótari en ernir,

sterkari en ljón.

24Ísraelsdætur, grátið Sál.

Hann skrýddi yður fegursta purpura,

hengdi gullskart á klæði yðar.

25Hetjurnar eru fallnar

mitt í orrustunni,

Jónatan veginn á hæðunum.

26Ég harma þig,

Jónatan, bróðir minn.

Þú varst mér mjög kær,

ást þín var mér undursamlegri

en ástir kvenna.

27Hetjurnar eru fallnar,

hervopnin glötuð.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help