Tóbítsbók 13 - Biblían (2007)

Lofgjörð Tóbíts

1Þá bað Tóbít:

Lofaður sé lifandi Guð að eilífu,

lofað sé ríki hans.

2Hann agar en miskunnar einnig,

leiðir til heljar niður í jarðardjúp

en hrífur einnig úr gereyðingunni.

Enginn fær umflúið hönd hans.

3Þakkið honum, Ísraelsmenn, í augsýn heiðingjanna.

Meðal þeirra dreifði hann yður.

4Þar sýndi hann mátt sinn.

Vegsamið hann frammi fyrir öllum lifendum

því að hann er Drottinn vor,

Guð vor og faðir vor.

Hann er Guð um aldir alda.

5Hann mun hirta yður vegna ranglætis yðar,

en hann mun einnig miskunna yður

og leiða yður aftur frá þjóðunum öllum

sem yður var dreift á meðal.

6Þegar þér snúið yður til hans

af öllu hjarta og allri sálu

og gerið rétt fyrir augliti hans

mun hann snúa sér að yður

og ekki framar hylja ásjónu sína fyrir yður.

Sjáið hvað hann hefur gert fyrir yður

og þakkið honum hástöfum.

Lofið Drottin réttlætisins,

vegsamið konung eilífðarinnar.

Ég þakka honum í landi útlegðar minnar,

kunngjöri syndugri þjóð mátt hans og mikilleik.

Snúið við, syndarar, lifið réttlátlega fyrir augliti hans.

Þá kann að vera að hann auðsýni yður náð og miskunn.

7Ég lofa Guð minn

og sál mín lofsyngur konung himinsins

og fagnar yfir mikilleik hans.

8Allir skulu tala um stórvirki hans

og syngja honum lof í Jerúsalem.

9Jerúsalem, borgin helga,

þig mun hann hirta fyrir syndir sona þinna

en réttlátum mun hann miskunna.

10Þakka þú Drottni því að hann er góður,

lofa konung eilífðarinnar.

Þá mun tjaldbúð þín

endurreist verða með miklum fögnuði.

Drottinn gleðji alla útlaga þína, Jerúsalem,

og auðsýni öllum þínum umkomulausu kærleika

frá kyni til kyns og um aldir alda.

11Skært ljós mun skína til endimarka jarðar

og margar þjóðir munu koma langt að til þín,

lýðir frá ystu endimörkum jarðar

til að nálgast þitt heilaga nafn.

Þeir munu færa konungi himinsins gjafir.

Ein kynslóð af annarri mun syngja gleðisöng í þér

og nafn hinnar útvöldu borgar mun vara

frá kyni til kyns um aldir alda.

12Bölvaðir séu allir sem lasta þig,

bölvaðir allir sem eyða þig

og rífa niður múra þína,

fella turna þína og leggja eld að húsum þínum.

En blessaðir séu þeir um eilífð sem auðsýna þér lotningu.

13Kom þá og fagna yfir sonum réttlátra

því að allir munu safnast saman

og lofa Drottin eilífðarinnar.

14Sælir eru þeir sem elska þig,

sælir eru þeir sem gleðjast yfir velgengni þinni.

Sælir eru allir þeir sem hryggjast

yfir þeim þjáningum öllum

sem á þér dundu

því að þeir munu gleðjast yfir þér

og sjá öll fagnaðarefni þín um eilífð.

15Lofa þú Drottin, sála mín, konunginn mikla.

16Því að Jerúsalem mun endurreist

sem hús Drottins um aldir alda.

Ég mun sæll ef nokkrir niðjar minna lifa

og fá að líta dýrð þína

og lofa konung himinsins.

Hlið Jerúsalem munu gerð úr safír og smaragði,

allir múrar þínir af eðalsteinum.

Turnar Jerúsalem munu gerðir af gulli,

varðturnarnir af skíragulli.

17Stræti Jerúsalem munu lögð steinflögumyndum

og eðalsteinum frá Ófír.

18Frá hliðum Jerúsalem munu gleðisöngvar óma

og frá hverju húsi mun hljóma:

Hallelúja, lofaður sé Ísraels Guð!

Hinir blessuðu munu lofa nafn Hins heilaga nú og að eilífu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help