Síraksbók 15 - Biblían (2007)

1Þannig breytir sá sem óttast Drottin,

sá sem þekkir lögmálið mun spekina hljóta.

2Hún kemur til móts við hann eins og móðir,

fagnar honum líkt og ung brúður.

3Hún fær honum brauð skilnings að eta,

veitir honum af vatni spekinnar.

4Hann styðst við hana og hrasar eigi,

treystir henni og verður ei til skammar.

5Spekin hefur hann upp yfir lagsmenn hans,

leggur honum orð á varir á mannfundum.

6Hamingju hlýtur hann og fögnuð

og orðstír sem aldrei deyr.

7Óskynsamir hljóta spekina aldrei,

syndugir menn munu eigi líta hana.

8Hún heldur sig fjarri hrokafullum

og kemur lygurum aldrei í hug.

9Lofsöngur sæmir eigi vörum syndara

því að hann er ekki af Drottni sendur.

10Lofgjörð skal sá flytja sem spekina á,

Drottinn mun gæða hana krafti.

Um frjálsan vilja

11Segðu ekki: „Drottinn lét mig falla frá.“

Eigi veldur Drottinn því sem hann hatar.

12Segðu ekki: „Það er hann sem leiddi mig afvega.“

Drottinn hefur enga þörf fyrir syndara.

13Hann hatar alla viðurstyggð,

enginn sem óttast hann ann henni.

14Hann skapaði manninn í upphafi

og veitti honum frelsi til að velja.

15Ef þú vilt þá getur þú haldið boðorðin,

verið trúfastur ef þér þóknast.

16Eld og vatn lagði hann fyrir þig,

teygðu fram hönd og tak hvort sem þú vilt.

17Andspænis mönnum er líf og dauði,

hvort sem þeir kjósa hlotnast þeim.

18Speki Drottins er mikil,

máttugur er hann og sér allt.

19Augu hans vaka yfir þeim er óttast hann

og öll mannanna verk eru honum kunn.

20Hann bauð engum að lifa guðlausu lífi

né heimilaði neinum að syndga.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help