1Salómon hóf að reisa hús Drottins í Jerúsalem á Móríafjalli þar sem Drottinn hafði birst Davíð, föður hans, á staðnum sem Davíð hafði ákveðið, á þreskivelli Ornans Jebúsíta.
2Hann hóf bygginguna í öðrum mánuðinum á fjórða stjórnarári sínu.
3Grunnflötur hússins, sem Salómon ákvað að reisa, var sextíu álnir á lengd og tuttugu á breidd; var alinin miðuð við eldra mál.
4Forsalurinn fyrir framan musterissalinn var tuttugu álnir á lengd, jafnbreiður húsinu, og tuttugu álnir á hæð. Hann lagði húsið skíragulli að innan.
5Hann þiljaði stóra salinn með kýprusviði og þakti skíragulli og skreytti með pálmum og blómafestum.
6Hann greypti einnig dýra steina í húsið og gullið var Parvaímgull.
7Þannig þakti hann húsið, bjálka, þröskulda, veggi og hurðir gulli og greypti kerúba í veggina.
8Hann gerði stúku hins allra helgasta. Hún var tuttugu álnir á lengd, eins og húsið var á breiddina, og tuttugu álnir á breidd. Hann þakti hana skíragulli sem vó sex hundruð talentur.
9Gullið, sem fór í naglana, vó fimmtíu sikla. Hann þakti einnig efri herbergin gulli.
10Hann gerði líkneski af tveimur kerúbum í stúku hins allra helgasta og voru þeir þaktir gulli.
11Vængir kerúbanna voru tuttugu álnir á lengd. Vængur annars kerúbsins var fimm álnir á lengd og snerti vegg hússins. Hinn vængurinn var jafnlangur og snerti væng hins kerúbsins.
12Vængur hins kerúbsins var einnig fimm álnir á lengd og nam við vegg hússins, hinn vængurinn var jafnlangur og snerti væng fyrrnefnda kerúbsins.
13Vænghaf kerúbanna var tuttugu álnir. Þeir stóðu uppréttir og andlit þeirra sneru að musterissalnum.
14Hann gerði fortjaldið úr bláum og rauðum purpura, skarlati og líni og skreytti það kerúbum.
15Framan við húsið gerði hann tvær súlur, þrjátíu og fimm álnir á hæð. Höfuð hvorrar um sig var fimm álnir.
16Hann gerði einnig keðjur eins og hálsfestar og kom þeim fyrir efst á súlunum, sömuleiðis hundrað granatepli og festi þau á keðjurnar.
17Hann reisti súlurnar framan við musterissalinn, aðra hægra megin og hina vinstra megin. Hann nefndi þá sem var hægra megin Jakín og þá til vinstri Bóas.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.