Jesaja 16 - Biblían (2007)

1Sendið hrútlamb til landstjórans,

frá Sela í eyðimörkinni

til fjalls dótturinnar Síonar.

2Eins og flöktandi fuglar,

eins og ungar fældir úr hreiðri

verða Móabsdætur

við vöðin á Arnon.

3„Gefðu ráð, taktu ákvörðun,

varpaðu náttsvörtum skugga

um hábjartan dag.

4Lát þá sem hröktust frá Móab hljóta vernd hjá þér,

vertu þeim skjól gegn eyðandanum.“

Þegar áþjáninni lýkur,

eyðingunni linnir

og kúgararnir eru horfnir úr landinu

5verður hásæti reist í trúfesti í tjaldi Davíðs

og í því mun jafnan sitja stjórnandi

sem leitar réttar og ástundar réttlæti.

6Vér höfum heyrt um hroka Móabs

sem er mikill,

stolt hans, yfirlæti og ofmetnað

og marklaus gífuryrði.

7Þess vegna kveina Móabítar,

þeir kveina allir yfir Móab.

Þeir stynja niðurbrotnir af hryggð

yfir rúsínukökunum frá Kír Hareset

8því að víngarðarnir í Hesbon

og vínviðurinn í Síbma hafa skrælnað.

Höfðingjar þjóðanna tróðu gæðavínber þeirra niður,

vínviðarteinungarnir teygðust til Jaser,

skriðu inn í eyðimörkina,

greinarnar breiddu úr sér

og héngu út yfir hafið.

9Þess vegna græt ég með Jaser

sem grætur yfir vínviðnum í Síbma.

Ég vil vökva þig tárum mínum,

Hesbon og Eleale,

því að fagnaðarópin yfir uppskeru þinni

og aldintekju hafa þagnað.

10Úr aldingörðunum heyrast hvorki fagnaðaróp né hlátrasköll.

Enginn treður vín í vínpressunni,

gleðihrópin eru þögnuð.

11Þess vegna titrar hjarta mitt sem hörpustrengur vegna Móabs

og hugur minn örvæntir sökum Kír Hares.

12Þegar Móab birtist og lýist á fórnarhæðinni,

heldur til helgidóma sinna til bæna,

kemur hann engu til leiðar.

13Þetta er boðskapurinn sem Drottinn flutti Móab fyrir löngu.

14En nú segir Drottinn: Eftir þrjú ár, talin sem ár vistráðinna, verður öll vegsemd Móabs og öll mannmergð hans fyrirlitin. Aðeins örfáir og umkomulausir verða eftir.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help