1Nahas frá Ammón hélt í herför og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu Jabesbúar við Nahas: „Gerðu sáttmála við okkur, þá verðum við þér undirgefnir.“
2Ammónítinn Nahas svaraði þeim: „Ég skal gera sáttmála við ykkur með því skilyrði að ég fái að stinga hægra augað úr ykkur öllum og hæða þannig allan Ísrael.“
3Öldungar Jabesborgar svöruðu honum: „Gefðu okkur sjö daga frest svo að við getum sent boðbera um allt land Ísraels. Sé þar enginn sem getur bjargað okkur gefumst við upp fyrir þér.“
4Þegar sendimennirnir komu til Gíbeu Sáls og báru upp erindi sitt við íbúana tóku allir að gráta hástöfum.
5En rétt í því kom Sál á eftir nautum sínum úr haganum og spurði: „Hvað er að fólkinu, af hverju grætur það?“ Honum var þá sagt frá erindi mannanna frá Jabes.
6Þegar Sál heyrði það kom andi Guðs yfir hann og reiði hans blossaði upp.
7Hann tók tvö naut, hjó þau í smátt og sendi hlutana með sendiboðunum um allt land Ísraels og lét þessa orðsendingu fylgja: „Þannig fer fyrir nautum hvers þess manns sem ekki fylgir Samúel og Sál.“ Þá kom ótti Drottins yfir fólkið og það hélt út í stríðið sem einn maður.
8Þegar Sál kannaði liðið í Besek reyndust Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund.
9Þá sagði hann við sendiboðana sem komnir voru: „Skilið þessu til Jabesbúa í Gíleað: Á morgun, áður en sól er hæst á lofti, berst ykkur hjálp.“ Jabesbúar glöddust er sendiboðarnir fluttu þeim þessi boð
10og sögðu við Ammónítana: „Á morgun gefumst við upp fyrir ykkur. Þá getið þið gert við okkur það sem ykkur sýnist.“
11Morguninn eftir skipti Sál liðinu í þrjár fylkingar. Um morgunvökuna brutust liðsmenn hans inn í herbúðir Ammóníta og er sól var hæst á lofti höfðu þeir gengið milli bols og höfuðs á þeim. Þeim sem sluppu lifandi var tvístrað svo að hvergi voru tveir saman sem komist höfðu lífs af.
12Þá sagði fólkið við Samúel: „Hver var það sem spurði: Á Sál að ríkja yfir okkur? Leiðið mennina fram svo að við getum drepið þá.“
13En Sál sagði: „Í dag verður enginn tekinn af lífi því að á þessum degi hefur Drottinn bjargað Ísrael.“
14En Samúel sagði við fólkið: „Komið, við skulum fara til Gilgal og endurnýja þar konungdóminn.“
15Því næst gekk allt fólkið þangað og gerði Sál að konungi fyrir augliti Drottins í Gilgal. Það slátraði heillafórnum fyrir augliti Drottins. Sál og allir Ísraelsmenn glöddust mjög.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.