Fyrri kroníkubók 18 - Biblían (2007)

Sigrar Davíðs

1Eftir þetta vann Davíð sigur á Filisteum. Hann braut þá undir sig og náði Gat og þorpunum umhverfis hana undan yfirráðum Filistea.

2Einnig sigraði hann Móabíta sem urðu skattskyldir þegnar Davíðs.

3Davíð sigraði einnig Hadadeser, konung í Sóba, í nánd við Hamat þar sem Hadadeser var í leiðangri til að endurreisa veldi sitt við Efratfljót.

4Davíð vann af honum þúsund vagna, sjö þúsund vagnliða og tuttugu þúsund fótgönguliða. Hann lét skera í sundur hásinarnar á öllum hestunum, nema á hundrað sem hann hélt eftir.

5Þegar Aramearnir frá Damaskus komu Hadadeser, konungi í Sóba, til hjálpar felldi Davíð tuttugu og tvö þúsund Aramea.

6Því næst setti Davíð landstjóra yfir ríki Aramea í Damaskus og urðu þeir skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig studdi Drottinn Davíð hvert sem hann fór.

7Gullskildina, sem menn Hadadesers áttu, tók Davíð herfangi og flutti til Jerúsalem.

8Davíð tók einnig mjög mikinn eir að herfangi úr borgum Hadadesers, Tebak og Kún. Úr því lét Salómon gera eirhafið, súlurnar og áhöld úr eir.

9Þegar Tóú, konungur í Hamat, frétti að Davíð hefði sigrað allan her Hadadesers, konungs í Sóba,

10sendi hann Haóram, son sinn, með gripi úr gulli, silfri og eir til Davíðs konungs. Hann lét flytja honum kveðju og heillaóskir vegna þess að hann hafði barist við Hadadeser og sigrað hann en Tóú hafði átt í stríði við Hadadeser.

11Davíð helgaði gripina Drottni ásamt silfrinu og gullinu sem hann hafði tekið að herfangi frá öllum þjóðunum, frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filisteum og Amalek.

12Þegar Davíð sneri heim sigraði hann Edóm í Saltdalnum og felldi átján þúsund menn.

13Því næst setti hann landstjóra yfir Edóm og allir Edómítar urðu þegnar Davíðs. Þannig studdi Drottinn Davíð hvert sem hann fór.

Embættismenn við hirð Davíðs

14Davíð ríkti yfir öllum Ísrael. Hann lét alla þjóð sína njóta réttar og réttlætis.

15Jóab Serújuson var settur yfir herinn, Jósafat Ahílúðsson var kallari konungs,

16Sadók Akítúbsson og Abímelek Abjatarsson voru prestar og Savsa var ríkisritari.

17Benaja Jójadason var foringi Kreta og Pleta. Synir Davíðs voru fremstir þeirra sem voru konungi til aðstoðar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help