1Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:
2„Ávarpið Ísraelsmenn og segið: Af öllum stórgripum jarðarinnar megið þið eta þessa:
3Þið megið eta stórgripi sem hafa klofna hófa, hafa klaufir og jórtra.
4En þessi dýr, sem aðeins jórtra eða aðeins hafa klofna hófa, megið þið ekki eta:
Þið megið ekki eta úlfalda; þið skuluð telja hann óhreinan því að hann jórtrar en hefur ekki klofna hófa;
5þið skuluð telja klettagreifingja óhreinan því að hann jórtrar en hefur ekki klofna hófa;
6þið skuluð telja héra óhreinan því að hann jórtrar en hefur ekki klofna hófa;
7þið skuluð telja svín óhreint því að það hefur klofna hófa, það hefur klaufir en jórtrar ekki.
8Þið megið hvorki neyta kjöts þessara dýra né snerta hræ þeirra, þau skulu vera ykkur óhrein.
9Þessi lagardýr megið þið eta: Öll dýr sem hafa ugga og hreistur og lifa í vatni, hvort heldur sjó eða fljótum.
10En öll smádýr, sem vötnin eru kvik af, og allar þær skepnur, sem lifa í vatni en hvorki hafa ugga né hreistur,
11skulu vera ykkur viðurstyggð. Sökum þess að þau eru ykkur viðurstyggð skuluð þið ekki neyta þeirra og ykkur skal bjóða við hræjum þeirra.
12Lagardýr, sem hvorki hafa ugga né hreistur, skulu vera ykkur viðurstyggð.
13Þessir fuglar skulu vera ykkur viðurstyggð og þeirra skal ekki neyta: örn, skegggammur, haförn,
14gleða, fálkar og haukar,
15hrafnakynið allt,
16strútur, svala, mávur, allar smyrlategundir,
17ugla, súla, náttugla,
18hornugla, snæugla, hrægammur,
19storkur, allar tegundir hegra, herfugl og leðurblaka.
20Öll ferfætt, vængjuð skordýr skulu vera ykkur viðurstyggð.
21Samt megið þið neyta ferfættra, vængjaðra skordýra sem hafa lærvöðva ofan við fótleggina til þess að stökkva með um jörðina.
22Af þeim megið þið neyta þessara dýra: ýmissa tegunda af flækingsengisprettum, klettaengisprettum, hlaupaengisprettum og stökkengisprettum.
23En öll önnur ferfætt, vængjuð skordýr skulu vera ykkur viðurstyggð.
24Þið verðið óhreinir af þessum dýrum. Hver sem snertir hræ þeirra verður óhreinn til kvölds.
25Hver sem tekur upp hræ þeirra skal þvo klæði sín og er óhreinn til kvölds.
26Stórgripir með klofna hófa en ekki klaufir, sem jórtra ekki, skulu vera ykkur óhreinir. Hver sem snertir þá verður óhreinn.
27Allir ferfætlingar, sem ganga á þófum, skulu vera ykkur óhreinir. Hver sem snertir hræ þeirra verður óhreinn til kvölds
28og hver sem tekur upp hræ þeirra skal þvo klæði sín og verður óhreinn til kvölds. Þau skulu vera ykkur óhrein.
29Af þeim dýrum, sem skríða á jörðinni, skulu þessi teljast óhrein: moldvarpa, mús, ýmsar eðlutegundir,
30skrækeðla, kóakeðla, letaeðla, salamandra og kamelljón.
31Af dýrunum, sem skríða á jörðinni, skulu þessi vera ykkur óhrein. Hver sem snertir hræ þeirra verður óhreinn til kvölds.
32Allt sem þau falla á dauð verður óhreint, hvort sem það er einhver hlutur úr viði, klæði, leðri eða striga eða hvaða nytsamur hlutur sem vera skal. Þeim hlut skal dýft í vatn og verður hann óhreinn til kvölds.
33Detti eitthvert þessara dýra í leirker verður allt óhreint sem í því er og skal kerið brotið.
34Allur matur, sem annars mætti neyta, verður óhreinn ef vatn úr slíku keri rennur á hann. Sérhver drykkur, sem annars mætti drekka, verður óhreinn í slíku keri.
35Allt sem hræ einhvers þessara dýra fellur á verður óhreint. Ef það er ofn eða eldstæði skal það rifið niður því að það er orðið óhreint. Það skal vera ykkur óhreint.
36Hins vegar verða lindir og brunnar, sem vatni er safnað í, hrein en sá einn sem snertir hræið verður óhreinn.
37Þegar hræ af einhverju þessara dýra fellur á útsæði sem á að sá er það hreint.
38Þegar útsæðið hefur verið vætt í vatni og hræ af einhverju þessara dýra fellur á það, skal það vera ykkur óhreint.
39Þegar fénaður, sem þið megið neyta, deyr verður sá sem snertir hræið af því óhreinn til kvölds.
40Sá sem neytir einhvers af hræinu skal þvo klæði sín og hann verður óhreinn til kvölds. Sá sem tekur hræið upp skal þvo klæði sín og hann verður óhreinn til kvölds.
41Sérhvert dýr, sem skríður á jörðinni, er viðurstyggð, það má ekki eta.
42Þið megið ekki eta nokkurt dýr sem skríður á kviðnum eða gengur á fjórum fótum eða fjölmörgum fótum, yfirleitt einskis dýrs sem skríður á jörðinni því að þau eru viðurstyggð.
43Gerið ykkur sjálfa ekki viðurstyggilega með því að snerta skriðdýr sem skríður, þið megið ekki saurgast af þeim með því að láta þau óhreinka ykkur.
44Vegna þess að ég er Drottinn, Guð ykkar, skuluð þið helga ykkur og vera heilagir því að ég er heilagur. Þið skuluð ekki saurga ykkur með því að snerta skriðdýr sem skríður á jörðinni.
45Vegna þess að ég er Drottinn, sem leiddi ykkur út af Egyptalandi til að gerast Guð ykkar, skuluð þið vera heilagir því að ég er heilagur.“
46Þetta eru lög um stórgripi og fugla, um lagardýr og um dýr sem skríða á jörðinni.
47Með þeim má greina á milli þess sem er óhreint og hreint og milli dýra sem neyta má og hinna sem ekki má neyta.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.