Fjórða Mósebók 23 - Biblían (2007)

Spádómsorð Bíleams

1Þá sagði Bíleam við Balak: „Reistu mér hér sjö ölturu og búðu sjö naut og sjö hrúta til fórnar.“

2Balak gerði það sem Bíleam bauð og Balak og Bíleam færðu naut og hrút í brennifórn á hverju altari.

3Þá sagði Bíleam við Balak: „Stattu kyrr við brennifórn þína. Ég ætla að víkja mér frá. Vera má að Drottinn mæti mér. Ég mun segja þér hvað ég fæ að sjá.“ Síðan gekk hann burt og upp á hæð.

4Þá mætti Guð honum. Bíleam sagði við hann: „Nú hef ég undirbúið þessi sjö ölturu og fært brennifórn á hverju þeirra.“

5Því næst lagði Drottinn orð í munn Bíleams og sagði: „Farðu aftur til Balaks og segðu honum þetta.“

6Þá fór hann aftur til hans þar sem hann stóð enn við brennifórnir sínar og allir hirðmenn Móabs með honum.

7Því næst flutti hann boðskap sinn.

Balak sótti mig frá Aram,

konungur Móabs, frá austurfjöllunum:

„Kom þú og bölva Jakobi fyrir mig,

kom og hóta Ísrael.“

8Get ég formælt þeim sem Drottinn formælir ekki,

get ég hótað þeim sem Drottinn hótar ekki?

9Frá klettagnípum sé ég hann,

af hæðunum horfi ég á hann,

Ísrael, þjóð sem býr ein sér

og telur sig ekki með öðrum þjóðum.

10Hver getur talið sandkorn Jakobs,

kastað tölu á tugþúsundir Ísraels?

Ég vildi deyja dauða hins réttláta,

að endalok mín verði sem hans.

11Balak sagði við Bíleam: „Hvað hefurðu gert mér? Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en nú hefurðu margblessað þá.“

12Bíleam svaraði og sagði: „Á ég ekki að gæta þess að segja það eitt sem Drottinn hefur lagt mér í munn?“

13Þá sagði Balak við hann: „Komdu nú með mér á annan stað þaðan sem þú getur séð fólkið. Þú munt að vísu aðeins geta séð þá sem næst standa en ekki geta séð það allt. Formæltu þjóðinni fyrir mig frá þessum stað.“

14Hann fór með hann upp á Pisgatind þangað sem víðast sést. Hann reisti sjö ölturu og færði naut og hrút í brennifórn á hverju altari.

15En Bíleam sagði við Balak: „Stattu kyrr hjá brennifórn þinni en ég ætla að reyna að mæta Drottni.“

16Þá mætti Drottinn Bíleam, lagði honum orð í munn og sagði: „Farðu aftur til Balaks og segðu honum þetta.“

17Þegar Bíleam kom til hans stóð hann enn við brennifórn sína og hirðmenn Móabs hjá honum. Balak spurði: „Hvað segir Drottinn?“

18Þá tók Bíleam að flytja boðskap sinn og sagði:

Rís upp, Balak, hlusta,

leggðu við hlustir, sonur Sippórs.

19Guð er ekki maður sem lýgur,

ekki sonur manns sem skiptir um skoðun.

Boðar hann eitthvað án þess að framkvæma það?

Heitir hann einhverju án þess að efna það?

20Ég tók að mér að blessa,

því blessa ég og tek það ekki aftur.

21Ekki er böl að sjá í Jakobi

né eymd í Ísrael.

Drottinn, Guð hans, er með honum

og konungshylling hljómar í Ísrael.

22Guð leiddi þá út úr Egyptalandi,

hann ber horn sem villinaut,

23því dugar enginn galdur gegn Jakobi,

engir töfrar gegn Ísrael.

Nú má segja við Jakob og Ísrael:

Hvað hefur Guð gert?

24Þessi þjóð er sem ljón sem rís upp,

ljónsungi sem stendur á fætur,

hann leggst ekki til hvíldar

fyrr en hann hefur étið bráð sína,

drukkið blóð hinna vegnu.

25Balak sagði við Bíleam: „Þótt þú formælir þjóðinni ekki, láttu að minnsta kosti vera að blessa hana.“

26Bíleam svaraði og sagði við Balak: „Hef ég ekki sagt við þig: Ég geri það eitt sem Drottinn býður?“

27Þá sagði Balak við Bíleam: „Komdu nú. Ég ætla að fara með þig á annan stað. Vera má að Guði þyki rétt að þú formælir þjóðinni fyrir mig þaðan.“

28Síðan fór Balak með Bíleam upp á Peórtind þaðan sem útsýni er yfir eyðimörkina.

29En Bíleam sagði við Balak: „Reistu hér sjö ölturu fyrir mig og búðu sjö naut og sjö hrúta til brennifórnar.“

30Balak gerði það sem Bíleam sagði og færði eitt naut og einn hrút í brennifórn á hverju altari.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help