Jósúabók 15 - Biblían (2007)

Land ættbálks Júda

1Það land sem ættbálki niðja Júda, hverri ætt fyrir sig, féll til eftir hlutkesti, lá að landsvæði Edóms og suður að Síneyðimörk lengst í suðri.

2Suðurlandamæri þeirra lágu frá strönd Saltasjávar, frá víkinni við suðurenda vatnsins.

3Þaðan liggja þau sunnan við Sporðdrekastíginn og til Sín, síðan upp á við sunnan við Kades Barnea, þá yfir til Hesrón, þaðan upp til Adar og í boga til Karka.

4Þá liggja þau til Asmón og allt að Egyptalandsá og loks til sjávar. Þetta eru suðurlandamæri Júdaættbálks.

5Austurlandamærin voru Saltavatn að ósum Jórdanar.

Landamærin norðan megin lágu frá víkinni við ósa Jórdanar,

6þaðan upp til Bet Hogla og áfram norðan við Bet Araba og að steini Bóhans Rúbenssonar.

7Síðan lágu landamærin upp frá Akordalnum til Debír og þaðan í norður til Gilgal gegnt stígnum til Adúmmím sem er sunnan við gilið. Þaðan lágu landamærin yfir að En-Semesvatni og þaðan í stefnu að Rógellind.

8Þau lágu upp Hinnomssonardal sunnan við fjallsöxl Jebúsíta, það er Jerúsalem. Þaðan lágu þau upp á tind fjallsins sem er vestur af Hinnomssonardal við norðurenda Refaímsléttu.

9Frá fjallstindinum sveigðu landamærin niður að Neftóalind og lágu þaðan til borganna á Efronfjalli. Þá sveigðu landamærin niður í átt til Baala, það er Kirjat Jearím.

10Frá Baala sveigðu landamærin í vestur í átt að Seírfjalli, síðan yfir á norðuröxl Jearímfjalls, það er Kesalon, þaðan ofan til Bet Semes og þaðan yfir til Timna.

11Þá lágu landamærin út að norðuröxl Ekron, sveigðu í átt að Síkrón, síðan yfir til Baalafjalls og því næst út dalinn til Jabneel og loks til sjávar.

12Vesturmörkin voru hafið mikla og ströndin. Þetta voru landamærin umhverfis land Júdamanna, allra ætta þeirra.

Kaleb og Aksa, dóttir hans

13Jósúa fékk Kaleb Jefúnnesyni landspildu mitt á meðal Júdamanna, eins og Drottinn hafði boðið honum. Var það Kirjat Arba en Arba var faðir Anaks, það er Hebron.

14Kalek flæmdi þrjá syni Anaks þaðan, þá Sesaí, Ahíman og Talmaí.

15Þaðan hélt hann gegn íbúum Debír sem áður nefndist Kirjat Sefer.

16Þá sagði Kaleb: „Þeim mun ég gefa Aksa, dóttur mína, að konu sem sigrar Kirjat Sefer og nær henni á sitt vald.“

17Otníel Kenasson, bróðir Kalebs, náði borginni og Kaleb gaf honum Aksa, dóttur sína, að eiginkonu.

18Þegar hún kom til hans fékk hann hana til að biðja föður sinn um akurland. Þegar hún steig af asnanum spurði Kaleb hana: „Hvað vilt þú?“

19Hún svaraði: „Blessaðu mig með gjöf. Þú gafst mig til hins skrælnaða Suðurlands, gefðu mér því brunna með vatni.“ Þá gaf Kaleb henni efri og neðri brunnana.

Borgirnar í Júda

20Þetta er erfðaland niðja Júda, hverrar ættar fyrir sig.

21Þetta eru borgirnar á landsvæði ættbálks niðja Júda:

Borgirnar á landi ættbálks Júdaniðja í Suðurlandinu við landamærin að Edóm voru þessar: Kabseel, Eder, Jagúr,

22Kína, Dímóna, Adada,

23Kedes, Hasór og Jítnan,

24Síf, Telem, Bealót,

25Hasór Hadatta og Keríjót Hesrón, það er Hasór,

26Amam, Sema, Mólada,

27Hasar Gadda, Hesmon, Bet Pelet,

28Hasar Súal, Beerseba og borgirnar sem henni heyrðu til,

29Baala, Ijím, Esem,

30Eltólað, Kesíl, Horma,

31Siklag, Madmanna, Sansanna,

32Lebaót, Silhím, Ain og Rimmon, alls tuttugu og níu borgir ásamt þorpunum sem þeim heyrðu til.

33Á láglendinu voru þessar borgir: Estaól, Sórea, Asna,

34Sanóa, En Ganním, Tappúa og Enam,

35Jarmút, Adúllam, Sókó, Aseka,

36Saaraím, Adítaím, Gedera og Gederótaím, alls fjórtán borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

37Senan, Hadasa, Migdal Gað,

38Dílean, Mispe, Jokteel,

39Lakís, Boskat, Eglon,

40Kabbón, Lahmas, Kitlís,

41Gederót, Bet Dagón, Naama og Makkeda, alls sextán borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

42Líbna, Eter, Asan,

43Jifta, Asna, Nesíb,

44Kegíla, Aksíb og Maresa, alls níu borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

45Ekron og minni bæir og þorp sem heyrðu henni til,

46og allar borgir frá Ekron, nærri Asdód, og þorpin sem heyrðu þeim til,

47Asdód og minni bæir og þorp sem heyra henni til og Gasa og minni bæir og þorp sem heyra henni til, allt að Egyptalandsá og hafinu mikla og ströndinni.

48Í fjalllendinu voru þessar borgir: Samír, Jattír, Sókó,

49Danna, Kirjat Sanna, það er Debír,

50Anab, Estemó, Aním,

51Gósen, Hólon og Gíló, alls ellefu borgir og þorpin sem þeim heyrðu til.

52Arab, Dúma, Esean,

53Janúm, Bet Tappúa, Afeka,

54Húmta, Kirjat Arba, það er Hebron, og Síor, alls níu borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

55Maon, Karmel, Síf, Júta,

56Jesreel, Jokdeam, Sanóa,

57Kaín, Gíbea og Timna, alls tíu borgir og þorpin sem heyra þeim til.

58Halhúl, Bet Súr, Gedór,

59Maarat, Bet Anót og Eltekón, alls sex borgir og þorpin sem heyrðu þeim til. Tekóa, Efrata, það er Betlehem, Fagór Etam, Kúlon, Tatami, Sóres, Karem, Gallím, Baiter og Manókó, alls ellefu borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

60Kirjat Baal, það er Kirjat Jearím, og Rabba, tvær borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

61Í eyðimörkinni voru þessar borgir: Bet Araba, Middín, Sekaka,

62Nibsan, Saltborgin og Engedí, alls sex borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.

63Júdamenn gátu ekki hrakið Jebúsítana sem bjuggu í Jerúsalem burt svo að Jebúsítar búa í Jerúsalem ásamt Júdamönnum enn í dag.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help