1Þegar múrinn var risinn og ég hafði látið koma fyrir vængjahurðum í hliðunum voru hliðverðir, söngvarar og Levítar skipaðir.
2Því næst skipaði ég Hananí, bróður minn, og Hananja, foringja virkisins, yfir Jerúsalem því að hann var traustari og guðhræddari en flestir aðrir.
3Ég gaf þeim þessi fyrirmæli:
„Ekki skal ljúka upp hliðum Jerúsalem fyrr en sól er komin hátt á loft og meðan hún er enn á lofti skal hliðunum lokað og slagbrandar settir fyrir. Enn fremur skal koma á fót varðsveitum Jerúsalembúa. Hver og einn skal standa vörð á sinni varðstöð við eigið hús.“
Skráning leikmanna4Borgin var stór og víðáttumikil en fátt fólk bjó í henni og ekki höfðu myndast nýjar fjölskyldur.
5Þá blés Guð minn mér því í brjóst að kalla saman aðalsmennina, embættismennina og almenning til skrásetningar eftir fjölskyldum þeirra. Ég fann skrá yfir fjölskyldur þeirra sem fyrst höfðu haldið heim og þar var skráð:
6Þetta eru þeir íbúar skattlandsins Júda sem sneru heim aftur úr útlegðinni sem þeir voru fluttir í. Nebúkadnesar Babýloníukonungur hafði flutt þá brott en þeir sneru nú aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar.
7Þetta eru þeir sem komu með Serúbabel: Jósúa, Nehemía, Asarja, Raamja, Nahamaní, Mordekaí, Bilsan, Misperet, Bigvaí, Nehúm og Bagana. Þetta er fjöldi karlmanna af Ísraelsþjóð:
8Niðjar Parós: 2172;
9niðjar Sefatja: 372;
10niðjar Ara: 652;
11niðjar Pahat Móabs, það er að segja Jósúa og Jóabs: 2818;
12niðjar Elams: 1254;
13niðjar Sattú: 845;
14niðjar Sakkaí: 760;
15niðjar Binnúí: 648;
16niðjar Bebaí: 628;
17niðjar Asgads: 2322;
18niðjar Adóníkams: 667;
19niðjar Bigvaí: 2067;
20niðjar Adíns: 655;
21niðjar Aters, af ætt Hiskía: 98;
22niðjar Hasúms: 328;
23niðjar Besaí: 324;
24niðjar Harífs: 112;
25menn frá Gíbeon: 95;
26menn frá Betlehem og Netófa: 188;
27menn frá Anatót: 128;
28menn frá Bet Asamavet: 42;
29menn frá Kirjat Jearím, Kefíra og Beerót: 743;
30menn frá Rama og Geba: 621;
31menn frá Mikmas: 122;
32menn frá Betel og Aí: 123;
33menn frá hinni Nebóborginni: 52;
34niðjar hins Elams: 1254;
35niðjar Haríms: 320;
36menn frá Jeríkó: 345;
37menn frá Lód, Hadíd og Ónó: 721;
38niðjar Senaa: 3930.
Skráning starfsmanna musterisins39Prestarnir: niðjar Jedaja, af ætt Jesúa: 973;
40niðjar Immers: 1052;
41niðjar Pashúrs: 1247;
42niðjar Haríms: 1017.
43Levítarnir: niðjar Jesúa, af ættum Kadmíels, Binnúí og Hodavja: 74.
44Söngvararnir: niðjar Asafs: 148.
45Hliðverðirnir: niðjar Sallúms, niðjar Aters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta og niðjar Sóbaí: 138.
46Musterisþjónarnir: niðjar Síha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts,
47niðjar Kerós, niðjar Sía, niðjar Padóns,
48niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Salmaí,
49niðjar Hanans, niðjar Giddels, niðjar Gahars,
50niðjar Reaja, niðjar Resíns, niðjar Nekóda,
51niðjar Gassams, niðjar Ússa, niðjar Pasea,
52niðjar Besaí, niðjar Meúníta, niðjar Nefísíta,
53niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs,
54niðjar Baselíts, niðjar Mehída, niðjar Harsa,
55niðjar Barkó, niðjar Sísera, niðjar Tema,
56niðjar Nesía og niðjar Hatífa.
57Niðjar þræla Salómons: niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perída,
58niðjar Jaala, niðjar Darkóns, niðjar Giddels,
59niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret Hassebaíms og niðjar Amóns.
60Musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómons voru alls 392.
61Þetta eru þeir sem komu upp eftir frá Tel Mela, Tel Harsa, Kerúb Addón og Immer en gátu ekki sýnt fram á að fjölskylda þeirra og ætt væri frá Ísrael:
62niðjar Delaja, niðjar Tobía og niðjar Nekóda: 642.
63Auk þess þessir af prestunum: niðjar Hobaja, niðjar Kós og niðjar Barsillaí en hann hafði kvænst einni af dætrum Barsillaí frá Gíleað og tekið sér nafn hans.
64Þessir menn leituðu nafna sinna í ættartölunum en þar sem þau fundust ekki voru þeir sviptir prestsembætti.
65Landstjórinn bannaði þeim að neyta af hinu háheilaga fyrr en prestur gengi fram með úrím og túmmím.
66Allur söfnuðurinn var 42.360 manns.
67Að auki voru þrælar þeirra og ambáttir 7337 og þeir höfðu einnig 245 söngvara og söngkonur.
68Þeir áttu 736 hesta, 245 múldýr,
69435 úlfalda og 6720 asna.
70Nokkrir af ættarhöfðingjunum gáfu gjafir til verksins. Landstjórinn gaf þúsund gullpeninga, 50 skálar, 530 prestaskrúða.
71Nokkrir af ættarhöfðingjunum gáfu 20.000 gullpeninga og 2200 mínur silfurs.
72Aðrir gáfu 20.000 gullpeninga, 2000 mínur silfurs og 67 prestaskrúða.
73Prestarnir, Levítarnir, hliðverðirnir, söngvararnir, ýmsir almennir borgarar, musterisþjónarnir og allir Ísraelsmenn settust að í borgum sínum. Ísraelsmenn höfðu sest að í borgum sínum þegar sjöundi mánuðurinn hófst.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.