Júdítarbók 9 - Biblían (2007)

Bæn Júdítar

1Júdít féll fram á ásjónu sína, jós ösku yfir höfuð sitt og lagði af sér þau klæði sem huldu hærusekkinn. Einmitt á sömu stundu og reykelsisfórnir kvöldsins voru færðar í musteri Guðs í Jerúsalem hrópaði Júdít háum rómi til Drottins og sagði:

2Drottinn, Guð Símeons föður míns.

Honum gafst þú sverð í hönd

svo að hann gæti refsað útlendingunum

sem spjölluðu meyna,

beruðu blygðun hennar og saurguðu

og svívirtu skaut hennar.

Þú hafðir boðið að svo mætti aldrei verða.

Samt gerðu þeir það.

3Þess vegna ofurseldir þú höfðingja þeirra dauða

og rekkjuna, sem blygðaðist sín fyrir svik þeirra,

vættir þú blóði þeirra.

Þú deyddir þræla og drottna

og þjóðhöfðingja í hásætum sínum.

4Þú framseldir eiginkonur þeirra til herfangs

og dætur þeirra til herleiðingar.

Öllu sem þeir áttu

skiptu hjartfólgin börn þín með sér.

Þau voru full vandlætingar þinnar,

höfðu andstyggð á flekkun blóðs síns

og ákölluðu þig um hjálp.

Ó, Guð, Guð minn. Bænheyr mig einnig, ekkjuna.

5Þú hefur því til leiðar komið

sem varð fyrri þessu

sem og þessu og því sem síðar verður.

Það sem er og verður hefur þú úthugsað,

það sem þú hefur í hyggju, það verður.

6Því að sérhvað það sem þú hefur í ráði,

það stígur fram og segir: „Hér erum vér.“

Allir vegir þínir eru undirbúnir

og ákvörðun þín vel grunduð.

7Assýríumenn hafa dregið saman mikinn her.

Þeir miklast af hestum sínum og riddurum,

stæra sig af öflugu fótgönguliði,

reiða sig á skjöld og spjót, boga og slöngu

en vita ekki að þú ert Drottinn

sem bindur enda á styrjaldir.

8Drottinn er nafn þitt.

Ljóst þú afl þeirra í reiði þinni,

brjót þú mátt þeirra með krafti þínum.

Þeir hyggjast vanhelga helgidóm þinn,

svívirða bústaðinn, sem dýrlegt nafn þitt dvelst í,

höggva horn altarisins niður með sverði.

9Lít á ofurdramb þeirra,

aus reiði þinni yfir höfuð þeirra.

Gef þú hendi minni, hendi ekkju,

mátt til að framkvæma það sem ég hef í ráði.

10Lát tályrði mín fella þræl og höfðingja,

einnig húsbónda og þjón hans.

Lát konuhönd eyða hroka þeirra.

11Máttur þinn byggist ei á mannafla

né vald þitt á þeim sem sterkir eru

heldur ert þú Guð auðmjúkra,

hjálpari kúgaðra,

verndari veikra,

vörður vanmegna,

frelsari vonarvana.

12Já, Guð föður míns,

Guð arfleifðar Ísraels,

Drottinn himins og jarðar,

þú sem skapaðir vötnin

og ert konungur alls sem þú hefur skapað.

Heyr þú bæn mína.

13Lát tælandi orð mín særa þá og nísta

sem bruggað hafa grimmdarráð gegn sáttmála þínum,

helgidómi þínum og Síonshæð

og húsi því sem synir þínir hafa fengið til eignar.

14Lát alla þjóð þína og allar ættkvíslir hennar sannreyna

að þú ert Guð alls máttar og kraftar

og að enginn nema þú einn ert verndari Ísraelsþjóðar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help