1Eftir pláguna ávarpaði Drottinn Móse og Eleasar Aronsson prests og sagði:
2„Takið manntal hjá öllum söfnuði Ísraelsmanna sem eru tuttugu ára og eldri, eftir fjölskyldum þeirra, allra vopnfærra manna í Ísrael.“
3Móse og Eleasar prestur töldu þá á gresjum Móabs við Jórdan gegnt Jeríkó alla sem voru tuttugu ára og eldri eins og Drottinn bauð Móse.
4Þeir Ísraelsmenn, sem fóru frá Egyptalandi, voru þessir:
5Rúben var frumburður Ísraels. Niðjar Rúbens voru Henok, út af honum ætt Henokíta, út af Pallú ætt Pallúíta,
6út af Hesrón ætt Hesróníta, út af Karmí ætt Karmíta.
7Þetta voru ættir Rúbeníta. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust vera 43.730.
8Sonur Pallú var Elíab
9og synir Elíabs voru Nemúel, Datan og Abíram. Þetta voru þeir sömu Datan og Abíram sem voru fulltrúar safnaðarins og réðust ásamt söfnuði Kóra gegn Móse og Aroni þegar söfnuðurinn réðst gegn Drottni.
10Þá opnaði jörðin gin sitt og gleypti þá ásamt Kóra þar sem söfnuðurinn fórst og eldur gleypti tvö hundruð og fimmtíu menn sem urðu að tákni til viðvörunar.
11En synir Kóra dóu ekki.
12Niðjar Símeons voru eftir ættum þeirra: út af Nemúel er ætt Nemúelíta komin, út af Jamín ætt Jamíníta, út af Jakín ætt Jakíníta,
13út af Sera ætt Seraíta, út af Sál ætt Sálíta.
14Þetta voru ættir Símeoníta. Þeir voru 22.200.
15Niðjar Gaðs voru eftir ættum þeirra: út af Sefón er ætt Sefóníta, út af Haggí ætt Haggíta, út af Súní ætt Súníta,
16út af Osní ætt Osníta, út af Erí ætt Eríta,
17út af Aród ætt Aródíta, út af Arelí ætt Arelíta.
18Þetta voru ættir Gaðíta. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 40.500.
19Niðjar Júda voru: Ger og Ónan en Ger og Ónan dóu í Kanaanslandi.
20Niðjar Júda voru eftir ættum þeirra: út af Sela kom ætt Selaníta, út af Peres ætt Peresíta, út af Sera ætt Seraíta.
21Niðjar Peresar voru: út af Hesrón kom ætt Hesróníta, út af Hamúl ætt Hamúlíta.
22Þetta voru ættir Júda. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 76.500.
23Niðjar Íssakars voru eftir ættum þeirra: út af Tóla kom ætt Tólaíta, út af Púva ætt Púníta,
24út af Jasjúb ætt Jasjúbíta, út af Símron ætt Símroníta.
25Þetta voru ættir Íssakars. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 64.300.
26Niðjar Sebúlons voru eftir ættum þeirra: út af Sered kom ætt Seredíta, út af Elon ætt Eloníta, út af Jahleel ætt Jahleelíta.
27Þetta voru ættir Sebúlons. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 60.500.
28Niðjar Jósefs voru eftir ættum þeirra Manasse og Efraíms.
29Niðjar Manasse voru eftir ættum þeirra: út af Makír kom ætt Makíríta. Makír átti Gíleað, út af Gíleað kom ætt Gíleaðíta.
30Þetta eru niðjar Gíleaðs: út af Jeser kom ætt Jesríta, út af Helek ætt Helekíta,
31út af Asríel ætt Asríelíta, út af Síkem ætt Síkemíta,
32út af Semída ætt Semídíta, út af Hefer ætt Hefríta.
33Selofhað, sonur Hefers, átti enga syni, aðeins dætur. Dætur Selofhaðs hétu Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirsa.
34Þetta voru ættir Manasse. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 52.700.
35Þetta voru niðjar Efraíms eftir ættum þeirra: út af Sútela kom ætt Sútelaíta, út af Beker ætt Bekeríta, út af Tahan ætt Tahaníta.
36Þetta voru niðjar Sútela: út af Eran kom ætt Eraníta.
37Þetta voru ættir niðja Efraíms. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 32.500. Þetta voru niðjar Jósefs eftir ættum þeirra.
38Niðjar Benjamíns voru eftir ættum þeirra: út af Bela kom ætt Belaíta, út af Asbel ætt Asbelíta, út af Ahíram ætt Ahíramíta,
39út af Súfam ætt Súfamíta, út af Húfam ætt Húfamíta.
40Synir Bela voru Ard og Naaman. Út af Ard kom ætt Ardíta, út af Naaman ætt Naamíta.
41Þetta voru niðjar Benjamíns eftir ættum þeirra. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 45.600.
42Niðjar Dans voru eftir ættum þeirra: út af Súham kom ætt Súhamíta. Þetta voru ættir Dans.
43Allar ættir Súhamíta, þeir sem taldir voru af þeim, reyndust 64.400.
44Niðjar Assers voru eftir ættum þeirra: út af Jímna kom ætt Jímníta, út af Jísví ætt Jísvíta, út af Bría ætt Brííta.
45Út af sonum Bría kom ætt Hebríta út af Heber, ætt Malkíelíta út af Malkíel.
46Dóttir Assers hét Sera.
47Þetta voru ættir niðja Assers. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 53.400.
48Niðjar Naftalí voru eftir ættum þeirra: út af Jahseel kom ætt Jahseelíta, út af Gúní ætt Gúníta,
49út af Jeser ætt Jesríta, út af Sillem ætt Sillemíta.
50Þetta voru ættir Naftalí. Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 45.400.
51Þetta voru þeir sem taldir voru af Ísraelsmönnum. Þeir reyndust 601.730.
52Drottinn talaði til Móse og sagði:
53„Landinu skal skipt í erfðahluti á milli þessara manna eftir tölu nafnanna:
54Þeim sem eru fjölmennir skal fengið stórt erfðaland en þeim sem eru fámennir lítið. Hverjum skal fengið erfðaland eftir tölu þeirra sem taldir voru.
55Samt skal landinu skipt með hlutkesti. Þeir skulu taka við erfðalöndum í landinu eftir nöfnum ættbálka feðra þeirra.
56Landinu skal skipt með hlutkesti á milli fjölmennra ætta og fámennra.“
57Þetta eru þeir sem taldir voru af Levítum eftir ættum þeirra: út af Gerson kom ætt Gersoníta, út af Kahat ætt Kahatíta, út af Merarí ætt Meraríta.
58Þetta voru ættir Leví: ætt Libníta, ætt Hebroníta, ætt Mahelíta, ætt Músíta, ætt Kóraíta. En Kahat átti Amram
59en eiginkona Amrams hét Jókebed Levídóttir. Hún fæddist Leví í Egyptalandi. Hún ól Amram þá Aron og Móse og Mirjam, systur þeirra.
60En Aroni voru aldir þeir Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.
61Nadab og Abíhú dóu þegar þeir færðu óhelgaðan eld fram fyrir auglit Drottins.
62Þeir sem taldir voru af þeim reyndust 23.000, allt karlar frá eins mánaðar aldri og eldri. Þeir voru ekki taldir með öðrum Ísraelsmönnum.
63Þetta voru þeir sem voru taldir af Móse og Eleasar presti þegar þeir töldu Ísraelsmenn á gresjum Móabs við Jórdan gegnt Jeríkó.
64Enginn þeirra var á manntalinu sem Móse og Aron prestur tóku meðal Ísraelsmanna í Sínaíeyðimörk
65því að Drottinn hafði sagt við þá að þeir yrðu að deyja í eyðimörkinni enda var enginn orðinn eftir af þeim nema Kaleb Jefúnneson og Jósúa Núnsson.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.