1Í Íkóníum gengu þeir á sama hátt inn í samkundu Gyðinga og töluðu þannig að mikill fjöldi Gyðinga og Grikkja tók trú.
2En Gyðingar, sem ekki vildu trúa, vöktu æsing með heiðingjum og illan hug gegn kristnum mönnum.
3Páll og Barnabas dvöldust þar alllangan tíma. Þeir töluðu einarðlega í trausti til Drottins og hann staðfesti orð náðar sinnar með táknum og undrum sem hann gaf þeim að gera.
4Skiptust nú borgarbúar í tvo flokka og voru sumir með Gyðingum, aðrir með postulunum.
5Heiðingjar og Gyðingar ásamt forystumönnum sínum gerðu þá samblástur um að misþyrma þeim og grýta þá.
6Postularnir komust að þessu og flýðu til borganna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu og héraðsins þar umhverfis.
7Þar héldu þeir áfram að flytja fagnaðarerindið.
8Í Lýstru var maður nokkur máttvana í fótum, lami frá móðurlífi, og hafði aldrei getað gengið.
9Maður þessi hlýddi á mál Páls en Páll horfði á hann og sá að hann hafði trú til þess að verða heill
10og sagði hárri raustu: „Rís upp og stattu í fæturna!“ Maðurinn spratt upp og tók að ganga.
11Múgurinn sá hvað Páll hafði gert og tók að hrópa á lýkaónsku: „Guðirnir eru í manna líki stignir niður til okkar.“
12Kölluðu þeir Barnabas Seif en Pál Hermes því að hann hafði orð fyrir þeim.
13En prestur í hofi Seifs utan borgar kom með naut og kransa að borgarhliðunum og vildi færa fórnir ásamt fólkinu.
14Þegar postularnir, Barnabas og Páll, heyrðu þetta rifu þeir klæði sín, stukku inn í mannþröngina og hrópuðu:
15„Menn, hví gerið þið þetta? Við erum menn eins og þið, og flytjum ykkur þann fagnaðarboðskap að þið skulið hverfa frá þessum fánýtu goðum til lifanda Guðs sem skapaði himin, jörð og haf og allt sem í þeim er.
16Hann hefur um liðnar aldir leyft að sérhver þjóð gengi sína vegu.
17En þó hefur hann vitnað um sjálfan sig með velgjörðum sínum. Hann hefur gefið ykkur regn af himni og uppskerutíðir. Hann hefur veitt ykkur fæðu og fyllt hjörtu ykkar gleði.“
18Með þessum orðum fengu þeir með naumindum fólkið ofan af því að færa þeim fórnir.
19Þá komu Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Töldu þeir fólkið á sitt mál og menn grýttu Pál, drógu hann út úr borginni og hugðu hann dáinn.
20En lærisveinarnir slógu hring um hann og reis hann þá upp og gekk inn í borgina. Daginn eftir fór hann þaðan með Barnabasi til Derbe.
Páll og Barnabas snúa aftur til Antíokkíu21Þegar þeir höfðu boðað fagnaðarerindið í Derbe og gert marga að lærisveinum sneru þeir aftur til Lýstru, Íkóníum og Antíokkíu,
22styrktu lærisveinana og hvöttu þá til að vera staðfastir í trúnni. Þeir sögðu: „Við verðum að þola margar þrautir áður en við komumst inn í Guðs ríki.“
23Þeir völdu þeim öldunga í hverjum söfnuði, fólu þá síðan með föstum og bænahaldi Drottni sem þeir höfðu fest trú á.
24Þá fóru þeir um Pisidíu og komu til Pamfýlíu.
25Þeir fluttu orðið í Perge, fóru til Attalíu
26og sigldu þaðan til Antíokkíu en þar höfðu þeir verið faldir náð Guðs til þess verks sem þeir höfðu nú fullnað.
27Þegar þeir voru þangað komnir stefndu þeir saman söfnuðinum og greindu frá hversu mikið Guð hafði látið þá gera og að hann hefði opnað heiðingjum dyr trúarinnar.
28Dvöldust þeir nú alllengi þar hjá lærisveinunum.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.