Esterarbók (með viðaukum) 3 - Biblían (2007)

1Nokkru síðar heiðraði Artaxerxes konungur Haman Hamadatsson og veitti honum mikinn frama. Hann var Búgaíti og gerði konungur hann öllum vinum sínum fremri að tign.

2Skipaði konungur að allir við hirðina ættu að lúta Haman til að auðsýna honum lotningu. Mardokaí laut honum hins vegar ekki.

3Hirðmenn konungs spurðu hann: „Mardokaí, hvers vegna óhlýðnast þú boði konungs?“

4Dag eftir dag færðu þeir þetta í tal við hann en hann skeytti því engu. Sögðu þeir þá Haman frá því að Mardokaí óhlýðnaðist skipun konungs og að hann hefði sagst vera Gyðingur.

5Þegar Haman komst að því að Mardokaí laut honum ekki varð hann ofsareiður.

6Ákvað hann að deyða alla Gyðinga meðal þegna Artaxerxesar.

7Á tólfta stjórnarári Artaxerxesar varpaði Haman hlutkesti. Varpaði hann hlut um það á hvaða degi og í hvaða mánuði hann ætti að eyða allri þjóð Mardokaí á einum og sama degi. Kom upp hlutur þrettánda dagsins í mánuði þeim sem heitir adar.

8Haman kom að máli við Artaxerxes konung og sagði: „Ein er sú þjóð sem býr dreifð meðal annarra þjóða um þvert og endilangt ríki þitt. Lög hennar eru frábrugðin lögum allra annarra þjóða og hún óhlýðnast lögum konungsins. Það samræmist ekki hagsmunum konungs að umbera þá þjóð.

9Ef konungi þóknast þá skal hann gefa út tilskipun um að eyða henni. Ég skal þá greiða tíu þúsund talentur silfurs í fjárhirslu konungs.“

10Konungur tók þá af sér hring og afhenti Haman svo að hann gæti sett innsigli á það sem skrifað yrði gegn Gyðingum.

11Einnig sagði konungur við Haman: „Haltu silfrinu og farðu með þessa þjóð eins og þér sýnist.“

12Á þrettánda degi fyrsta mánaðar voru skrifarar konungs kvaddir saman. Samkvæmt fyrirmælum Hamans rituðu þeir öllum landstjórum og héraðshöfðingjum í skattlöndunum allt frá Indlandi til Eþíópíu. Skrifuðu þeir sérhverjum héraðshöfðingja í skattlöndunum hundrað tuttugu og sjö á hans eigin tungu og í nafni Artaxerxesar konungs.

13Hraðboðar voru sendir um ríki Artaxerxesar með boð um að deyða skyldi alla Gyðinga á einum og sama degi í tólfta mánuði ársins, sem nefnist adar, og gera allar eigur þeirra upptækar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help