Fjórða Mósebók 10 - Biblían (2007)

Lúðrarnir

1Drottinn talaði til Móse og sagði:

2„Gerðu tvo lúðra úr silfri. Þú skalt gera þá með drifnu smíði. Þú skalt nota þá til að kalla saman söfnuðinn og til að gefa hernum merki til brottfarar.

3Þegar þið gefið merki með lúðraþyt skal allur söfnuðurinn koma saman hjá þér við dyr samfundatjaldsins.

4Ef þið þeytið einu sinni skulu höfðingjarnir, æðstu höfðingjar Ísraels ætta, koma saman hjá þér.

5Ef þið gefið merki með hvellum hljómi skulu hersveitirnar, sem tjalda austan megin, leggja af stað.

6Ef þið gefið merki öðru sinni með hvellum hljómi skulu hersveitirnar, sem tjalda sunnan megin, leggja af stað. Þið skuluð gefa merki til brottfarar með lúðraþyt.

7En þegar söfnuðurinn skal koma saman skuluð þið þeyta lúðrana en ekki hvellt.

8Prestarnir, synir Arons, skulu þeyta lúðrana. Það skal vera þeim ævarandi lagaákvæði frá kyni til kyns.

9Þegar þið haldið til orrustu gegn þeim sem þrengja að ykkur í landi ykkar og þið blásið í lúðrana verður ykkar minnst fyrir augliti Drottins, Guðs ykkar. Þá verður ykkur bjargað undan fjandmönnum ykkar.

10Á gleðidögum ykkar og hátíðum og við upphaf mánaða skuluð þið þeyta lúðrana, einnig við brennifórnir og heillafórnir. Þeir munu minna á ykkur frammi fyrir augliti Guðs ykkar. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“

Lagt af stað frá Sínaí

11Á tuttugasta degi annars mánaðar hóf skýið sig upp frá sáttmálstjaldinu.

12Þá lögðu Ísraelsmenn af stað frá Sínaíeyðimörkinni í þeirri röð sem ákveðin var en skýið nam staðar í Paraneyðimörk.

13Þeir héldu þá af stað í fyrsta sinn að boði Drottins fyrir munn Móse.

14Fyrst var haldið af stað með merki búða Júdasona, hver hersveit þeirra fyrir sig en Nakson Ammínadabsson var yfir her Júda.

15Yfir her sona Íssakars var Netanel Súarsson

16og Elíab Helónsson yfir her ættbálks Sebúlonssona.

17Því næst var tjaldbúðin tekin niður og þá lögðu synir Gersons og Merarí af stað en þeir báru tjaldbúðina.

18Þá var haldið af stað með merki búða sona Rúbens, hver hersveit fyrir sig. Elísúr Sedeúrsson var yfir her Rúbens.

19Selúmíel Súrísaddaíson var yfir her Símeonssona

20og Eljasaf Degúelsson yfir her ættbálks Gaðssona.

21Því næst lögðu Kahatítar af stað sem báru helgidóminn. Tjaldbúðin var reist áður en þeir komu.

22Þá var haldið af stað með merki búða Efraímssona, hver hersveit fyrir sig. Elísama Ammíhúdsson var yfir her Efraímssona

23og Gamlíel Pedasúrsson yfir her ættbálks Manassesona.

24Abídan Gídoníson var yfir her ætt bálks Benjamínssona.

25Loks var lagt af stað með merki búða Danssona, hver hersveit þeirra fyrir sig. Her Dans var bakvarðarsveit alls hersins. Akíeser Ammísaddaíson var yfir her hans.

26Pagíel Ókransson var yfir her Assersniðja

27og Akíra Enansson yfir her Naftalíniðja.

28Þetta var sú röð sem ákveðin var fyrir Ísraelsmenn þegar þeir lögðu af stað, hver hersveit þeirra fyrir sig.

29Móse sagði við Hóbab Regúelsson frá Midían, tengdaföður sinn: „Við erum í þann veginn að leggja af stað til þess staðar sem Drottinn hefur heitið að gefa okkur. Komdu með okkur. Við munum reynast þér vel því að Drottinn hét Ísrael velgengni.“

30Hóbab svaraði honum: „Ég fer ekki með ykkur, heldur heim til lands míns og ættmenna.“

31Þá sagði Móse: „Yfirgefðu okkur ekki. Vegna þess að þú veist hvar við getum tjaldað í eyðimörkinni getur þú vísað okkur veginn.

32Ef þú kemur með okkur munum við reynast þér vel þegar Drottinn lætur okkur farnast vel.“

33Þeir lögðu af stað frá fjalli Drottins og fóru þrjár dagleiðir. Sáttmálsörk Drottins fór fyrir þeim þrjár dagleiðir til að leita þeim að hvíldarstað.

34Ský Drottins var yfir þeim á daginn er þeir lögðu upp frá herbúðunum.

35Við brottför arkarinnar sagði Móse:

Rís þú upp, Drottinn,

svo að óvinir þínir tvístrist

og fjandmenn þínir flýi fyrir þér.

36Þegar hún nam staðar sagði hann:

Snúðu aftur, Drottinn,

til hinna tíu þúsund þúsunda Ísraels.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help