Önnur Mósebók 35 - Biblían (2007)

Hvíldardagurinn

1Móse stefndi saman öllum söfnuði Ísraelsmanna og sagði: „Þetta er það sem Drottinn hefur boðið ykkur að gera:

2Sex daga skal vinna en sjöundi dagurinn skal vera ykkur heilagur hvíldardagur, algjör hvíld vegna Drottins. Hver sem vinnur verk þann dag skal tekinn af lífi.

3Þið megið ekki kveikja eld í híbýlum ykkar á hvíldardegi.“

Gjafir til helgidómsins

4Móse sagði við allan söfnuð Ísraelsmanna: „Þetta er það sem Drottinn hefur boðið:

5Færið Drottni gjafir af eignum ykkar. Sérhver skal færa Drottni gjöf eftir því sem hjarta hans býður honum, gull, silfur og eir,

6bláan purpura, rauðan purpura, skarlat, fínt lín, geitahár,

7rauðlituð hrútsskinn og höfrungahúðir, akasíuvið,

8olíu fyrir ljósastikuna, ilmefni fyrir smurningarolíu og ilmandi reykelsi,

9sjóamsteina og aðra steina til að setja á hökulinn og brjóstskjöldinn.

10Allir hagleiksmenn á meðal ykkar skulu koma og gera allt sem Drottinn hefur boðið,

11samfundatjaldið, tjöld þess og þak, króka, þiljuborð, þverslár, súlur, sökkla,

12örkina og stengurnar, sem henni fylgja, lokið, fortjaldið,

13borðið og stengurnar, sem því fylgja, öll áhöld þess og skoðunarbrauðin,

14ljósastikuna og áhöldin og lampana, sem henni fylgja, og olíu fyrir ljósastikuna,

15reykelsisaltarið og stengurnar, sem því fylgja, smurningarolíuna, hið ilmandi reykelsi og forhengið fyrir inngang tjaldbúðarinnar,

16brennifórnaraltarið og eirgrindurnar, stengurnar, sem þeim fylgja, og öll áhöld þess, kerið ásamt stétt þess,

17tjöld forgarðsins, súlur hans og sökkla, forhengið fyrir hliðið inn í forgarðinn,

18tjaldhæla tjaldbúðarinnar, tjaldhæla forgarðsins og stögin, sem þeim fylgja,

19glitklæðin fyrir þjónustuna í helgidóminum, hinn heilaga skrúða Arons prests og prestaskrúðann fyrir syni hans.“

20Því næst gekk allur söfnuður Ísraelsmanna burt frá Móse.

21Þá komu þeir aftur sem gefa vildu af fúsum hug og af frjálsum vilja. Allir færðu Drottni framlag vegna vinnunnar við samfundatjaldið og þjónustunnar í því og hins helga skrúða.

22Bæði karlar og konur komu. Allir komu með gjafir af fúsum vilja, armbönd, nefhringi, fingurgull, hálskeðjur og alls kyns gullgripi, allir þeir sem ætluðu að færa Drottni gull í helgigjöf.

23Sérhver, sem fann hjá sér bláan purpura, rauðan purpura, skarlat, fínt lín, geitahár, rauðlituð hrútsskinn og höfrungaskinn, kom með það.

24Sérhver, sem gat lagt fram silfur eða eir, færði Drottni það að gjöf og sérhver, sem fann hjá sér akasíuvið sem var nothæfur í eitthvað sem átti að gera, kom með hann.

25Sérhver kona, sem var vel að sér í handavinnu, spann og kom með það sem hún hafði spunnið, purpurablátt, purpurarautt og hárautt band ásamt fínu líni.

26Allar konur, sem fúsar voru til og höfðu til þess kunnáttu, spunnu geitahár.

27Höfðingjarnir komu með sjóamsteina og steina til að leggja á hökulinn og brjóstskjöldinn,

28einnig ilmefni og olíu fyrir ljósastikuna og í smurningarolíu og ilmandi reykelsi.

29Sérhver karl eða kona, sem fús var til, kom með það af frjálsum vilja sem þurfti til verksins sem Drottinn hafði boðið fyrir munn Móse að unnið yrði. Ísraelsmenn komu með það til Drottins af frjálsum vilja.

Hagleiksmennirnir

30Móse sagði við Ísraelsmenn: „Drottinn hefur kvatt til Besalel Úríson, Húrssonar, af ættbálki Júda.

31Hann hefur fyllt hann anda Guðs með visku, skilningi, kunnáttu og hvers konar hagleik

32til að hugsa upp og smíða úr gulli, silfri og eir,

33til að grafa í steina og greypa þá, skera í tré og til að vinna hvers konar hagleiksverk.

34Hann bjó hann þeirri gáfu að kenna öðrum, hann og Oholíab Akísamaksson af ættbálki Dans.

35Hann bjó þá hugviti til að vinna alls konar gröft í steina, listvefnað, glitvefnað úr bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og fínu líni og dúkvefnað. Þeir geta því látið sér í hug koma hvers konar verk og unnið þau.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help