Sálmarnir 64 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2Heyr, Guð, raust mína er ég kveina,

varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins,

3skýl mér fyrir flokki illmenna,

fyrir illvirkjamúg

4er hvetur tungur sínar sem sverð,

miðar eitruðum orðum líkt og örvum

5til þess að skjóta úr launsátri á hinn ráðvanda,

þeir hæfa hann óvænt, hvergi hræddir.

6Þeir eggja hver annan með illyrðum,

ráðgast um að leggja snörur,

spyrja: „Hver getur séð oss?“

7Þeir áforma glæpi,

leyna lævísum brögðum.

Hyldýpi er hugur manns og hjarta.

8Þá skýtur Guð ör gegn þeim,

óvænt verða þeir sárir

9og tunga þeirra verður þeim að falli.

Hver sem sér þá hristir höfuðið

og allir fyllast skelfingu.

10Þá mun hver maður óttast,

kunngjöra dáðir Guðs

og gefa gætur að verkum hans.

11Hinn réttláti gleðst yfir Drottni

og leitar hælis hjá honum

og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help