Sálmarnir 141 - Biblían (2007)

1Davíðssálmur.

Drottinn, ég ákalla þig, skunda þú til mín,

ljá eyra bæn minni þegar ég ákalla þig.

2Bæn mín berist sem reykelsi fyrir auglit þitt

og upplyfting handa minna sem kvöldfórn.

3Set þú, Drottinn, vörð við munn minn,

gæt hliðs vara minna.

4Lát hjarta mitt eigi hneigjast að neinu illu

svo að ég fremji ekki óguðleg verk með illvirkjum.

Ég vil ekki bragða krásir þeirra.

5Hinir réttlátu geta slegið mig

og hirt mig í kærleika

en olía guðlausra skal ekki smyrja höfuð mitt.

Stöðugt bið ég um hjálp gegn illsku þeirra.

6Þegar höfðingjum þeirra verður hrundið niður af kletti

munu menn skilja að orð mín voru mild.

7Eins og þegar jörð er plægð og henni bylt

verður beinum þeirra dreift við gin heljar.

8Augu mín horfa til þín, Drottinn,

hjá þér leita ég hælis,

sel mig ekki dauðanum á vald.

9Varðveit mig fyrir gildru þeirra er sitja um mig

og fyrir snörum illvirkjanna.

10Hinir óguðlegu falli í eigið net

þegar ég geng óhultur hjá.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help