1Spekin veitti athöfnum þeirra brautargengi undir handleiðslu heilags spámanns.
2Þeir fóru um óbyggða eyðimörk og slógu tjöldum á öræfum.
3Þeir vörðust óvinum og hrundu af sér fjandmönnum.
4Þeir ákölluðu þig, þegar þá þyrsti, og fengu vatn úr þverhníptu bjargi og svölun við þorsta úr hörðum kletti.
5Það sem óvinum þeirra var refsað með varð þeim sjálfum til gagns er þeir voru nauðstaddir.
6Þegar óvinum þeirra var refsað
7fyrir boðið um að myrða börnin, með því að flaumur lindarvatnsins mengaðist óhreinu blóði, gafst þú hinum réttlátu gnægð vatns þegar þess var síst von.
8Þú lést þorstann fyrst auðsýna þeim hvernig þú refsaðir andstæðingum þeirra.
9Þótt þú agaðir þá mildilega sýndi sú reynsla þeim hvernig óguðlegir þjást þegar refsandi reiði kemur yfir þá.
10Réttláta hefur þú reynt og áminnt sem faðir en hina rannsakaðir þú og sakfelldir eins og strangur konungur.
11Þeir kvöldust á sama hátt, bæði nær og fjær,
12enda kom tvöfaldur harmur yfir þá, kveinstafir sem ýfðu minningu hins liðna.
13Því að þeir skynjuðu að Drottinn var að verki þegar þeir heyrðu að refsingarnar, sem þeir hlutu, urðu hinum til blessunar.
14Þann sem þeir höfðu forðum borið út, hrakið frá sér og hæðst að, urðu þeir að dásama að leikslokum. Þorsti þeirra var af öðrum toga en hinna réttlátu.
Egyptum refsað fyrir syndir15Í ranglæti sínu höfðu hugsanir þeirra verið fávíslegar og leitt í þá villu að dýrka skynlaus skriðdýr og auvirðilegar pöddur. Þess vegna sendir þú þeim mergð skynlausra kvikinda til þess að refsa þeim
16og kenna þeim að það sem þeir nota til að syndga verður þeim til refsingar.
17Almætti þitt, sem skópst heiminn af ómynduðu efni, hefði megnað að stefna gegn þeim flokki bjarndýra eða öskrandi ljóna.
18Það hefði einnig getað skapað ný og óþekkt villidýr sem ýmist spúðu eldi, fnæstu þrumandi mekki eða væru með augu sem skutu ægilegum gneistum.
19Ekki hefði þurft árás slíkra dýra til að eyða ranglátum heldur hefði það eitt að sjá þau tortímt þeim, svo skelfileg væri sú sjón.
20Þú hefðir líka getað látið þá falla án þessara dýra fyrir einum andgusti. Þú hefðir getað hrakið þá með refsidómi þínum og tvístrað þeim með voldugum anda þínum. En þú hefur skipað öllu eftir mæli, tölu og vog.
21Þér er ætíð fært að beita voldugum mætti þínum. Hver fær staðist máttugan arm þinn?
22Allur heimurinn er sem fis á vog fyrir þér, líkur daggardropa er fellur á jörðu að morgni.
23En þú miskunnar öllum því að þú megnar allt og umberð syndir manna svo að þeir sjái að sér.
24Þú elskar allt, sem er til, og hefur ekki ímugust á neinu, sem þú hefur gert, né skapaðir þú neitt er þú gætir haft óbeit á.
25Hvernig fengi nokkuð staðist gegn vilja þínum eða varðveist ef þú hefðir ekki gefið því líf?
26Þú hlífir öllu af því að það er þitt, ó, Drottinn, sem elskar allt sem lifir, því að óforgengilegur andi þinn er í öllu.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.