Önnur Mósebók 36 - Biblían (2007)

1Besalel, Oholíab og allir aðrir hagleiksmenn, sem Drottinn gaf hugvit og kunnáttu svo að þeir bera skynbragð á alls konar verk sem vinna þarf vegna helgidómsins, eiga að gera allt sem Drottinn hefur boðið.“

Gjöld til helgidómsins

2Móse kallaði nú fyrir sig Besalel og Oholíab og alla aðra hagleiksmenn sem Drottinn hafði veitt þekkingu, alla sem fúsir voru til að hefja verkið og vinna það.

3Þeir tóku við öllum gjöfunum af Móse sem Ísraelsmenn höfðu komið með svo að hægt væri að vinna allt verkið við helgidóminn. En Ísraelsmenn komu sjálfviljugir með gjöld sín, hvern morgun.

4Þá komu allir hagleiksmennirnir sem voru að vinna allt sem þurfti vegna helgidómsins, hver frá því verki sem hann var að vinna,

5og sögðu við Móse: „Fólkið kemur með meira en nauðsynlegt er vegna verksins sem Drottinn bauð að vinna.“

6Móse skipaði þá að þessi boð yrðu kunngjörð í búðunum: „Hér eftir skulu hvorki karlar né konur hafa fyrir því að koma með gjafir til helgidómsins.“ Þá hætti fólkið að koma með afgjöldin

7því að nóg var komið, meira að segja meira en nóg, til að vinna allt verkið.

Tjaldbúðin

8Hagleiksmennirnir á meðal þeirra, sem verkið unnu, gerðu tjaldbúðina úr tíu tjalddúkum úr tvinnuðu, fínu líni, bláum purpura, rauðum purpura og skarlati. Þeir glitófu kerúba í dúkana.

9Hver dúkur var tuttugu og átta álna langur og fjögurra álna breiður. Allir dúkarnir voru jafnstórir.

10Hann festi fimm tjalddúka hvern við annan og hina fimm tjalddúkana festi hann einnig hvern við annan.

11Síðan gerði hann lykkjur úr bláum purpura á jaðar annars tjalddúksins á samfellunni og eins á jaðar endadúksins á hinni samfellunni.

12Hann gerði fimmtíu lykkjur á annan tjalddúkinn og fimmtíu lykkjur á jaðar endadúksins í hinni samfellunni. Lykkjurnar stóðust á.

13Síðan gerði hann fimmtíu króka úr gulli og krækti dúkana saman með krókunum svo að tjaldbúðin varð ein og óskipt.

14Hann gerði tjalddúka úr geitahári til að tjalda með yfir tjaldbúðina, ellefu tjalddúka.

15Hver dúkur var þrjátíu álna langur og fjögurra álna breiður. Þessir ellefu tjalddúkar voru jafnstórir.

16Hann festi saman fimm dúka sér og sex dúka sér.

17Hann gerði fimmtíu lykkjur á jaðar endadúksins í samfellunni og fimmtíu lykkjur á jaðar dúksins í hinni samfellunni.

18Hann gerði fimmtíu króka úr eir til að krækja tjaldbúðina saman svo að hún yrði ein heild.

19Hann gerði þak yfir tjaldið úr rauðlituðum hrútsskinnum og annað þak úr höfrungaskinnum yfir það.

20Hann gerði þiljuborð í tjaldbúðina, borð úr akasíuviði sem stóðu upp á endann.

21Hvert borð var tíu álna langt og hálf önnur alin á breidd.

22Á hverju borði voru tveir tappar til að festa þau. Þannig gerði hann öll borðin fyrir tjaldbúðina.

23Hann gerði borð fyrir tjaldbúðina: tuttugu borð fyrir suðurhliðina

24og fjörutíu sökkla úr silfri undir þessi tuttugu borð, tvo sökkla undir hvert borð, sinn fyrir hvorn tappa.

25Fyrir hina hlið tjaldbúðarinnar, norðurhliðina, gerði hann tuttugu borð

26og fjörutíu sökkla úr silfri, tvo sökkla fyrir hvert borð.

27Hann gerði sex borð fyrir afturgafl tjaldbúðarinnar sem snýr í vestur

28og hann gerði tvö borð fyrir horn búðarinnar á bakhliðinni.

29Þau voru tvöföld að neðan og eins að ofan til fyrsta hrings. Þannig gerði hann þau bæði, í báðum hornunum.

30Þetta voru átta borð ásamt sökklum úr silfri, sextán sökklum, tveimur undir hverju borði.

31Hann gerði þverslár úr akasíuviði, fimm fyrir þiljuborðin á annarri hlið tjaldbúðarinnar

32og fimm fyrir þiljuborðin á hinni hlið hennar og fimm þverslár fyrir þiljuborðin á bakhliðinni gegnt vestri.

33Hann gerði miðslána þannig að hún var á miðjum borðunum, endanna á milli.

34Hann lagði borðin gulli og gerði hringi úr gulli á þau til að halda þverslánum uppi. Hann lagði einnig slárnar gulli.

35Hann gerði fortjaldið úr bláum purpura, rauðum purpura og skarlati ásamt tvinnuðu, fínu líni. Hann óf í það kerúba með myndvefnaði.

36Hann gerði fjórar súlur úr akasíuviði og lagði þær gulli. Í þeim voru naglar úr gulli og hann steypti undir þær fjóra sökkla úr silfri.

37Hann gerði forhengi fyrir inngang tjaldsins úr bláum purpura, rauðum purpura og skarlati ásamt tvinnuðu, fínu líni, listilega gerðu.

38Hann gerði fimm súlur úr akasíuviði með nöglum fyrir forhengið. Hann lagði súlnahöfuðin og þverslárnar gulli en sökklar þeirra voru úr eir.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help