1Og Benjamín gat Bela, frumburð sinn, Asbel var annar, þriðji Ahra,
2fjórði Nóha og fimmti Rafa.
3Og Bela átti syni: Addar og Gera, föður Ehúðs,
4og Abísúa og Naaman og Ahóa
5og Gera og Sefúfan og Húram.
6Þetta voru synir Ehúðs. Þeir voru höfðingjar yfir ættkvíslum íbúanna í Geba og þeir voru fluttir í útlegð til Manahat.
7En Naaman og Ahía voru fluttir í útlegð af Gera. Og Gera gat Ússa og Ahíhúð.
8Saharaím gat syni á Móabsvöllum eftir að hann hafði skilið við konur sínar, Húsím og Baöru.
9Við konu sinni, Hódes, gat hann Jóbab og Síbja og Mesa og Malkam
10og Jeús og Sokja og Mirma. Þetta voru synir hans, ættarhöfðingjar.
11Og við Húsím gat hann Abítúb og Elpaal.
12Og synir Elpaals voru Eber og Míseam og Semer. Hann byggði Ónó og Lód ásamt dótturborgum þeirra.
13Og Bería og Sema voru höfðingjar yfir ættkvíslum íbúanna í Ajalon. Þeir hröktu íbúana í Gat í burtu.
14Og bræður þeirra voru Elpaal og Sasak og Jeremót.
15Sebadja og Arad og Eder
16og Mikael og Jispa og Jóha voru synir Bería.
17Og Sebadja og Mesúllam og Hiskí og Heber
18og Jísmeraí og Jíslía og Jóbab voru synir Elpaals.
19Og Jakím og Sikrí og Sabdí
20og Elíenaí og Silletaí og Elíel
21og Adaja og Beraja og Simrat voru synir Símeí.
22Og Jíspan og Eber og Elíel
23og Abdón og Síkrí og Hanan
24og Hananja og Elam og Antótía
25og Jífdeja og Penúel voru synir Sasaks.
26Og Samseraí og Seharja og Atalja
27og Jaaresja og Elía og Síkrí voru synir Jeróhams.
28Þessir menn voru ættarhöfðingjar og höfðingjar í ættum sínum samkvæmt ættartölum. Þeir bjuggu í Jerúsalem.
29Faðir Gíbeons, Jegúel, bjó í Gíbeon. Kona hans hét Maaka.
30Frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Súr og Kís og Baal og Ner og Nadab
31og Gedór og Ahjó og Seker.
32Og Míklót gat Símea. Þeir settust einnig að í Jerúsalem eins og bræður þeirra og bjuggu hjá bræðrum sínum.
33Og Ner gat Kís og Kís gat Sál og Sál gat Jónatan og Malkísúa og Abínadab og Esbaal.
34Og sonur Jónatans var Meríbaal og Meríbaal gat Míka.
35Og synir Míka voru Píton og Melek og Tarea og Akas.
36Og Akas gat Jóadda og Jóadda gat Alemet og Asmavet og Simrí. Og Simrí gat Mósa
37og Mósa gat Bínea. Sonur hans var Rafa og sonur hans Eleasa og sonur hans Asel.
38Og Asel átti sex syni. Þeir hétu Asríkam, Bokrú og Ísmael og Searja og Óbadía og Hanan. Þetta voru allir synir Asels.
39Og synir Eseks, bróður hans, voru Úlam, frumburðurinn, Jeús, næstur honum, og Elífelet hinn þriðji.
40Og synir Úlams voru hraustir hermenn, bogaskyttur. Þeir áttu marga syni og sonarsyni, hundrað og fimmtíu alls. Þetta voru allt synir Benjamíns.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.