1Þið eruð börn Drottins, Guðs ykkar. Þið megið ekki rista á ykkur skinnsprettur og ekki raka á ykkur krúnu yfir enninu eftir framliðinn mann,
2því að þú ert þjóð helguð Drottni, Guði þínum. Drottinn hefur valið þig úr öllum þjóðunum, sem á jörðinni eru, til að vera eignarlýður sinn.
Hrein fæða og óhrein3Þú skalt ekki eta neitt viðbjóðslegt.
4Þetta eru dýrin sem þið megið eta: naut, sauðfé, geitur,
5hirtir, skógargeitur, dádýr, steingeitur, fjallageitur, antílópur og gemsur.
6Þið megið eta öll dýr sem hafa klaufir, og þær alklofnar, og jórtra.
7En þessi dýr, sem jórtra og hafa alklofnar klaufir, megið þið ekki eta: úlfalda, héra og stökkhéra því að þau jórtra að vísu en hafa ekki klaufir. Þau skulu vera ykkur óhrein,
8einnig villisvínið því að það hefur klaufir en jórtrar ekki. Það skal vera ykkur óhreint. Þið megið hvorki leggja ykkur kjöt þessara dýra til munns né snerta hræ þeirra.
9Af lagardýrum megið þið neyta alls sem hefur ugga og hreistur.
10En þið megið ekki eta neitt sem hvorki hefur ugga né hreistur. Það skal vera ykkur óhreint.
11Alla hreina fugla megið þið eta.
12En þetta eru fuglarnir sem þið megið ekki eta: örninn, gammurinn, skegggammurinn,
13gleðan, ýmsar fálkategundir,
14hrafnakynið,
15strúturinn, uglan, mávurinn, haukakynið,
16hornuglan, náttuglan, snæuglan,
17pelíkaninn, hrægammurinn, súlan,
18storkurinn, lóukynið, herfuglinn og leðurblakan.
19Öll vængjuð skordýr skulu vera ykkur óhrein, þau má ekki eta.
20En alla hreina fugla má eta.
21Þið megið ekki eta neitt sjálfdautt. Þú mátt gefa það aðkomumanni í borgum þínum að eta eða þú getur selt það aðkomumanni. En þú ert Drottni, Guði þínum, helgaður lýður.
Þú skalt ekki sjóða geitakið í mjólk móður sinnar.
Ákvæði um tíundir og afgjöld22Á hverju ári skaltu taka tíund af allri uppskerunni sem akurinn gefur af sáðkorni þínu.
23Síðan skaltu neyta tíundarinnar af korni þínu, víni og olíu og af frumburðum nauta þinna og sauðfjár frammi fyrir Drottni, Guði þínum, á staðnum sem hann velur til þess að láta nafn sitt búa þar svo að þú lærir að óttast Drottin, Guð þinn, alla daga.
24Sé staðurinn of langt frá þér sem Drottinn, Guð þinn, hefur valið til að setja nafn sitt á og sé leiðin of löng til þess að þú getir flutt þangað það sem Drottinn, Guð þinn, hefur blessað þig með,
25þá skaltu koma tíund þinni í peninga. Þú skalt binda um silfrið og taka það með þér til staðarins sem Drottinn, Guð þinn, hefur valið sér.
26Fyrir silfrið skaltu kaupa hvað sem þig lystir: naut og sauðfé, vín og sterka drykki eða hvað annað sem þig langar í. Þú skalt neyta þess frammi fyrir Drottni, Guði þínum, og gleðjast með fjölskyldu þinni.
27Þú skalt ekki setja Levítana hjá, sem búa í borg þinni, því að þeir hafa hvorki fengið land né erfðahluti eins og þú.
28Þriðja hvert ár skalt þú taka til alla tíundina af uppskeru þinni það árið og koma henni fyrir innan borgarhliða þinna.
29Þá geta Levítarnir, sem hvorki hafa hlotið land né erfðahluti eins og þú, aðkomumennirnir, munaðarleysingjar og ekkjur í borgum þínum komið og etið sig mett svo að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.