Síraksbók 17 - Biblían (2007)

1Drottinn skapaði manninn af moldu

og lætur hann hverfa aftur til jarðar.

2Hann markaði mönnum daga og æviskeið

og gaf þeim vald yfir öllu á jörðu.

3Hann veitti þeim hlutdeild í mætti sínum

og skapaði þá í sinni mynd.

4Hann lét allt sem lifir hafa beyg af mönnum

og lét þá drottna yfir dýrum og fuglum.

6Skynsemi gaf hann þeim, tungu og augu,

eyru og hjarta svo að þeir mættu hugsa.

7Drottinn fyllti þá þekkingu og skilningi

og kenndi þeim að greina gott og illt.

8Hann fyllti hjarta þeirra guðsótta

svo að þeir sæju máttug verk hans.

9-10 Þeir skulu vegsama hans heilaga nafn

og boða máttarverk hans.

11Hann veitti mönnum kost á þekkingu,

gaf þeim lögmálið sem leiðir til lífs.

12Hann gerði við þá eilífan sáttmála

og kunngjörði þeim boðorð sín.

13Augu þeirra litu máttuga vegsemd hans

og eyru þeirra námu dýrlega rödd hans.

14Hann sagði við þá: „Forðist allt ranglæti,“

og bauð sérhverjum hvernig breyta skyldi við náungann.

Guð dæmir

15Vegir manna blasa ávallt við Drottni,

þeir geta aldrei dulist sjónum hans.

16Þeir feta veg illskunnar frá æsku

og megna ekki að breyta steinhjörtum sínum í hjörtu af holdi.

17Þegar hann skipti þjóðum gjörvallrar jarðar

setti hann sérhverri þjóð leiðtoga

en Ísrael er eign Drottins.

18Hann er frumburður hans og agar hann,

gefur honum ljós kærleika síns og afrækir hann ekki.

19Öll verk manna eru honum svo augljós sem sólin,

án afláts hvíla augu hans á vegum þeirra.

20Rangindi þeirra eru ekki hulin Drottni,

syndir þeirra allar blasa við honum.

21Drottinn er góður og þekkir þá sem hann skóp,

hann sleppir þeim ekki, svíkur þá ekki, heldur miskunnar þeim.

22Drottinn metur miskunnsemi manns sem innsiglishring,

hann gætir góðvildar manns sem sjáaldurs augans.

23Síðar mun hann rísa upp og endurgjalda þeim,

láta þeim misgjörðir í koll koma.

24En þeim sem iðrast tekur hann aftur við

og hughreystir þá sem eru að missa móðinn.

Hvatning til iðrunar

25Snú þér til Drottins og lát af syndum,

bið frammi fyrir honum og minnka misgjörðir.

26Snú aftur til Hins hæsta og hverf frá ranglæti

og hata ákaft alla viðurstyggð.

Hann mun sjálfur leiða þig til ljóss síns sem læknar.

27Hver lofsyngur Hinum hæsta í helju,

hver mun flytja lofgjörð í lifenda stað?

28Sá sem deyr fyrirfinnst ei framar,

lofgjörð hans hljóðnar,

sá sem á líf og heilsu syngi Drottni lof.

29Hve mikil er miskunn Drottins

og mildi hans við þá er til hans snúa.

30Eigi er allt á valdi mannsins,

mannanna börn eru eigi ódauðleg.

31Hvað ljómar bjartar sólu?

Og jafnvel hún myrkvast.

Ill er hyggja holds og blóðs.

32Drottinn hefur yfirsýn yfir hersveitir hæsta himins

en allir menn eru mold og aska.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help