Síraksbók 20 - Biblían (2007)

Hvenær tala skal og hvenær þegja

1Oft er áminnt í ótíma,

tíðum er viturlegra að þegja.

2Betra er að áminna en byrgja reiði inni,

3sá sem gengst við ávirðingu þarf eigi að bera kinnroða.

4Líkur geldingi, sem reynir að nauðga mey,

er sá sem vill koma á rétti með ofstopa.

5Margur er þögull og þykir vitur,

aðrir baka sér óvild með málæði sínu.

6Margur er þögull enda orða vant,

annar þegir og bíður síns tíma.

7Vitur maður er þögull uns tímabært er að tala,

málugur og heimskur talar í ótíma.

8Fyrirlitinn verður fjölmálgur maður,

hataður sá sem frekju beitir.

Þér er hollt að sýna bót við áminningu

því að með því má forðast ásetningssynd.Skyndilegar breytingar á högum manna

9Stundum verður manni lán úr óláni

en stundum happ að óhappi.

10Til er að gjafmildi verði þér eigi til góðs

en sumar gjafir endurgjaldast tvöfalt.

11Upphefð veldur sumum niðurlægingu,

stundum hefjast menn úr hneisu.

12Til er að menn kaupi mikið fyrir lítið

en megi svo gjalda það sjöfalt.

13Vitur maður hlýtur vinsældir af fáum orðum

en fagurmælum heimskingja er á glæ kastað.

14Eigi mun gjöf óskynsams manns gleðja þig

því að hann væntir margra í stað einnar.

15Hann gefur smátt en lastar hátt,

lýkur upp munni og hrópar eins og kallari.

Hann lánar í dag en krefur á morgun,

slíkur maður vekur hatur.

16Heimskinginn segir: „Ég á engan vin

og fæ enga þökk fyrir velgjörðir mínar.“

Þeir sem brauð hans eta baktala hann,

17hve oft verður hann ekki að athlægi?

Það sem hann á er illa fengið

og það sem hann á ekki skiptir hann engu.Ógætni í orðum

18Betra er manni að missa fóta en stjórn á tungu,

þannig hendir illan mann bráð hrösun.

19Fávís maður er eins og óviðeigandi frásögn

sem sífellt er á vörum óagaðra manna.

20Spakmæli heimskingja eru einskis metin

því að þau eru í ótíma töluð.

21Mörgum forðar fátækt frá synd,

þá nagar samviskan eigi er lagst er til hvíldar.

22Margur fer með sig á feimni

og bakar sér tjón með að standa ekki gegn fávísum.

23Margur gefur vini loforð af einurðarleysi

og bakar sér óvild að ófyrirsynju.

24Lygin er ljótur blettur á mönnum,

hún er algeng í munni óagaðs manns.

25Betri er þjófur en sílyginn maður

en báðir munu þeir glötun hreppa.

26Það sem lygarinn temur sér verður vanvirða hans,

skömmin hans sífelldi förunautur.

Orðskviðir

27Sá hlýtur frama sem viturlega mælir,

höfðingjum geðjast að hyggnum manni.

28Sá uppsker ríkulega sem jörðina erjar

og sá sem nær hylli höfðingja fær brot sín fyrirgefin.

29Gestrisni og gjafir slá augu spekinga blindu,

líkt og kefli í munni kæfa þær gagnrýni.

30Hulin speki og falinn fjársjóður,

hvað stoðar það hvort um sig?

31Betri er sá sem heimsku sína hylur

en hinn sem dylur speki sína.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help