Fyrri Samúelsbók 16 - Biblían (2007)

Sál og DavíðDavíð smurður til konungs

1Drottinn sagði við Samúel: „Hversu lengi ætlarðu að vera sorgmæddur vegna Sáls? Ég hef hafnað honum sem konungi yfir Ísrael. Fylltu horn þitt af olíu og haltu af stað. Ég sendi þig til Ísaí frá Betlehem því að ég hef valið mér einn af sonum hans til að verða konungur.“

2Samúel svaraði: „Hvernig get ég farið þangað? Sál drepur mig ef hann fréttir þetta.“ Þá sagði Drottinn: „Taktu með þér kvígu og segðu: Ég er kominn til að færa Drottni fórn.

3Síðan skaltu bjóða Ísaí til fórnarveislunnar og ég mun láta þig vita hvað þú átt að gera. Þann sem ég nefni skaltu smyrja mér.“

4Samúel gerði eins og Drottinn bauð. Þegar hann kom til Betlehem gengu öldungar borgarinnar skelfdir á móti honum og spurðu: „Kemur þú með friði?“

5Hann svaraði: „Já, ég er kominn til að færa Drottni fórn. Helgið ykkur og komið með mér til fórnarveislunnar.“ Síðan helgaði hann Ísaí og syni hans og bauð þeim til fórnarveislunnar.

6Þegar þeir komu og Samúel sá Elíab hugsaði hann: „Hér stendur Drottins smurði áreiðanlega frammi fyrir honum.“

7En Drottinn sagði við Samúel: „Horfðu ekki á hæð hans og glæsileik því að ég hef hafnað honum. Guð lítur ekki á það sem maðurinn lítur á. Maðurinn sér hið ytra en Drottinn horfir á hjartað.“

8Þá kallaði Ísaí á Abínadab og lét hann ganga fyrir Samúel en hann sagði: „Ekki hefur Drottinn heldur valið þennan.“

9Síðan lét Ísaí Samma ganga fram en hann sagði: „Ekki hefur Drottinn heldur valið þennan.“

10Ísaí lét syni sína sjö ganga fram fyrir Samúel en Samúel sagði við Ísaí: „Engan þeirra hefur Drottinn valið.“

11Því næst spurði Samúel Ísaí: „Eru þetta allir synir þínir?“ Hann svaraði: „Þann yngsta vantar enn því að hann situr yfir fénu.“ Þá sagði Samúel við Ísaí: „Sendu einhvern eftir honum. Við setjumst ekki til borðs fyrr en hann er kominn.“

12Ísaí sendi þá mann eftir Davíð sem var rauðbirkinn, fagureygur og vel vaxinn. Þá sagði Drottinn: „Stattu upp og smyrðu hann því að þetta er hann.“

13Samúel tók þá olíuhornið og smurði hann að bræðrum hans viðstöddum. Andi Drottins kom yfir Davíð frá þessum degi. En Samúel hélt af stað og fór til Rama.

Davíð við hirð Sáls

14Andi Drottins hafði þá yfirgefið Sál en illur andi frá Drottni var tekinn að þjaka hann.

15Þjónar Sáls sögðu þá við hann: „Það er illur andi frá Guði sem sífellt þjakar þig.

16Herra okkar þarf ekki annað en nefna það, þá skulu þjónar þínir, sem bíða frammi fyrir þér, leita að einhverjum sem kann að leika á hörpu. Hann getur leikið á hljóðfærið og þá líður þér betur þegar illi andinn frá Guði kemur yfir þig.“

17Sál sagði þá við þjóna sína: „Finnið fyrir mig mann, sem leikur vel á hljóðfæri, og komið með hann til mín.“

18Þá svaraði einn þjónanna og sagði: „Ég þekki son Ísaí frá Betlehem sem kann að leika á hljóðfæri. Auk þess er hann hraustmenni og góður hermaður. Hann er vel máli farinn og vel vaxinn og Drottinn er með honum.“

19Þá gerði Sál menn á fund Ísaí með þessi skilaboð: „Sendu Davíð, son þinn, sem gætir fjárins, til mín.“

20Ísaí sótti þá asna, lagði á hann brauð, vínbelg og kiðling og sendi það með Davíð, syni sínum, til Sáls.

21Þannig kom Davíð til Sáls og gekk í þjónustu hans. Sál féll mjög vel við hann og varð Davíð skjaldsveinn hans.

22Sál sendi því skilaboð til Ísaí: „Davíð á að vera áfram í þjónustu minni því að mér fellur hann vel í geð.“

23Alltaf þegar illi andinn frá Guði kom yfir Sál tók Davíð hörpuna og lék á hana. Þá létti Sál og honum leið betur og illi andinn yfirgaf hann.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help