Sálmarnir 102 - Biblían (2007)

1Bæn hrjáðs manns þá er hann örmagnast og úthellir harmi sínum fyrir augliti Drottins.

2Drottinn, heyr þú bæn mína,

hróp mitt berist til þín.

3Byrg eigi auglit þitt fyrir mér

þegar ég er í nauðum staddur,

hneig eyra þitt að mér,

svara mér skjótt þegar ég kalla.

4Dagar mínir líða hjá sem reykur

og bein mín brenna sem í eldi,

5hjarta mitt er mornað og þornað sem gras

því að ég gleymi að eta brauð mitt.

6Af kveinstöfum mínum

er ég sem skinin bein.

7Ég líkist pelíkana í eyðimörkinni,

er eins og ugla í eyðirúst,

8ég ligg andvaka,

líkist einmana fugli á þaki.

9Fjandmenn mínir smána mig liðlangan daginn;

þeir sem hamast gegn mér nota nafn mitt til formælinga.

10Já, ég neyti ösku sem brauðs,

blanda drykk minn tárum

11vegna reiði þinnar og bræði

því að þú hófst mig upp og varpaðir mér aftur til jarðar.

12Dagar mínir eru sem síðdegisskuggi

og ég visna sem gras.

13En þú, Drottinn, ríkir að eilífu

og þín er minnst frá kyni til kyns.

14Þú munt rísa upp, sýna Síon miskunn

því að nú er tími til kominn að líkna henni,

já, stundin er runnin upp.

15Því að þjónar þínir elska steina Síonar

og harma yfir rústum hennar.

16Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins

og allir konungar jarðarinnar dýrð þína

17því að Drottinn byggir upp Síon

og birtist í dýrð sinni.

18Hann gefur gaum að bæn hinna allslausu

og hafnar ekki bæn þeirra.

19Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð

og þjóð, sem enn er ekki sköpuð, skal lofa Drottin.

20Drottinn lítur niður frá sinni heilögu hæð,

horfir frá himni til jarðar

21til að heyra andvörp bandingja

og leysa börn dauðans,

22til að kunngjöra nafn Drottins á Síon

og lofa hann í Jerúsalem

23þegar þjóðir safnast þar saman

og konungsríki til að þjóna Drottni.

24Hann bugaði kraft minn á miðri ævi,

fækkaði ævidögum mínum.

25Ég segi: „Guð minn, sviptu mér ekki burt á miðri ævi

því að ár þín vara frá kyni til kyns.“

26Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina

og himinninn er verk handa þinna;

27þau munu líða undir lok en þú varir,

þau munu fyrnast sem fat,

þú leggur þau frá þér sem klæði og þau hverfa

28en þú ert hinn sami og ár þín fá engan enda.

29Börn þjóna þinna munu búa óhult

og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help