Þriðja Mósebók 19 - Biblían (2007)

Ýmis ákvæði um guðsdýrkun og samfélag

1Drottinn talaði við Móse og sagði:

2„Ávarpaðu allan söfnuð Ísraelsmanna og segðu: Verið heilagir því að ég, Drottinn, Guð ykkar, er heilagur.

3Sérhver skal virða móður sína og föður og halda hvíldardaga mína. Ég er Drottinn, Guð ykkar.

4Snúið ykkur ekki að hjáguðum og gerið ykkur ekki steyptar guðamyndir. Ég er Drottinn, Guð ykkar.

5Þegar þið slátrið dýri í lokasláturfórn handa Drottni skuluð þið slátra því þannig að þið hljótið velþóknun hans.

6Þið skuluð neyta þess sama dag og þið slátrið því eða daginn eftir. Á þriðja degi skal það sem þá er eftir brennt í eldi.

7Sé einhvers af því neytt á þriðja degi er það orðið óhreint: fórnin er ekki velþóknanleg.

8Sá sem neytir þess skal bera sekt sína því að hann hefur vanhelgað helgigjöf Drottins. Sá maður skal upprættur úr þjóð sinni.

9Þegar þið skerið upp kornið í landi ykkar skaltu hvorki hirða af ysta útjaðri akurs þíns né dreifarnar á akri þínum.

10Þú skalt hvorki tína allt í víngarði þínum né hirða ber sem falla í víngarði þínum. Þú skalt skilja þetta eftir handa hinum fátæka og aðkomumanninum. Ég er Drottinn, Guð ykkar.

11Þið megið hvorki stela né svíkja og ekki hlekkja hver annan.

12Þið skuluð ekki sverja meinsæri við nafn mitt svo að þú vanhelgir ekki nafn mitt. Ég er Drottinn.

13Þú skalt hvorki féfletta náunga þinn né ræna hann. Laun daglaunamanns skulu ekki vera í þinni vörslu næturlangt til næsta morguns.

14Þú mátt hvorki formæla heyrnarlausum manni né setja hindrun í veg fyrir blindan. Þú skalt bera lotningu fyrir Guði þínum. Ég er Drottinn.

15Þið megið ekki fremja ranglæti í réttinum. Þú mátt hvorki draga taum hins valdalausa né vera hinum valdamikla undirgefinn. Þú skalt dæma skyldmenni þín af réttlæti.

16Þú mátt hvorki bera róg á meðal landa þinna né krefjast blóðs náunga þíns. Ég er Drottinn.

17Þú skalt ekki bera hatur í brjósti til bróður þíns heldur átelja hann einarðlega svo að þú berir ekki sekt hans vegna.

18Þú skalt ekki hefna þín á löndum þínum. Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ég er Drottinn.

19Þið skuluð fara að fyrirmælum mínum:

Þú skalt ekki láta tvær tegundir fénaðar para sig. Þú skalt ekki sá tvenns konar korni í akur þinn. Þú skalt ekki bera klæði sem ofin eru úr tvenns konar bandi.

20Leggist maður með konu, sem er ambátt og heitbundin öðrum manni en hefur ekki enn verið keypt frjáls eða gefið frelsi, liggur refsing við. Þau skulu þó ekki líflátin af því að hún hafði ekki fengið frelsi.

21Maðurinn skal færa Drottni sektarfórn sína og leiða hrút, sem ætlaður er í sektarfórn, að dyrum samfundatjaldsins.

22Með hrútnum, sem ætlaður er í sektarfórn, skal presturinn friðþægja fyrir hann frammi fyrir augliti Drottins vegna þeirrar syndar sem hann hefur drýgt. Þá verður syndin fyrirgefin sem hann hefur drýgt.

23Þegar þið komið inn í landið og gróðursetjið alls konar tré, sem bera æta ávexti, skuluð þið líta á ávextina sem forhúð þeirra. Í þrjú ár skuluð þið líta á þau sem óumskorin og ekki neyta ávaxta þeirra.

24Á fjórða ári skal helga Drottni alla ávexti þeirra á gleðihátíð.

25En á fimmta ári megið þið neyta ávaxta þeirra og hirða það sem trén gefa af sér. Ég er Drottinn.

26Þið skuluð ekki neyta neins sem blóð er í. Þið skuluð hvorki stunda spásagnir eftir fyrirboðum né galdur.

27Þið skuluð ekki krúnuraka höfuð ykkar. Þú skalt ekki snyrta skegg þitt.

28Þið skuluð hvorki rista sár í húð ykkar vegna látins manns né láta húðflúra tákn á ykkur. Ég er Drottinn.

29Smánaðu ekki dóttur þína með því að láta hana stunda hórdóm svo að landið hórist ekki og fyllist ólifnaði.

30Þið skuluð halda hvíldardaga mína og bera lotningu fyrir helgidómi mínum.

31Snúið ykkur hvorki til miðla né þeirra sem flytja spámæli frá öndum. Ef þið leitið til þeirra óhreinkist þið. Ég er Drottinn, Guð ykkar.

32Þú skalt standa upp fyrir hinum gráhærða og virða öldunga. Þú skalt sýna Guði þínum lotningu. Ég er Drottinn.

33Þegar aðkomumaður dvelur hjá ykkur skuluð þið ekki sýna ójöfnuð.

34Aðkomumaður, sem dvelur hjá ykkur, skal njóta sama réttar og innborinn maður. Þú skalt elska hann eins og sjálfan þig því að þið voruð aðkomumenn í Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð ykkar.

35Þið skuluð ekki hafa rangt við fyrir rétti hvað varðar stiku, vigt og mæli.

36Þið skuluð nota rétta vigt, rétta vigtarsteina, rétta efu og rétta hín. Ég er Drottinn, Guð ykkar, sem leiddi ykkur út úr Egyptalandi.

37Haldið öll lög mín og reglur og farið að þeim. Ég er Drottinn.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help