Jobsbók 36 - Biblían (2007)

Fjórða ræða Elíhú

1Elíhú tók enn til máls og sagði:

2Andartak, ég ætla að segja þér dálítið,

enn er margt ósagt um Guð.

3Þekkingu mína ætla ég að draga langt að

og sýna fram á réttlæti skapara míns.

4Orð mín eru sannarlega engin lygi,

hjá þér er sá sem býr yfir fullkominni þekkingu.

5Guð er voldugur en fyrirlítur engan,

hann er voldugur að mætti og speki.

6Hann gefur ekki óguðlegum líf

en lætur umkomulausa ná rétti sínum.

7Hann hefur ekki augun af réttlátum

en setur þá í hásæti með konungum, ævinlega,

og þeir verða mikils metnir.

8En hafi þeir verið lagðir í hlekki,

reyrðir í reipi þjáningarinnar,

9setur hann þeim verk þeirra fyrir sjónir

og misgjörðir því að þeir hreyktu sér.

10Hann opnar eyru þeirra og vandar um við þá,

hvetur þá til að hverfa frá vonsku sinni.

11Ef þeir hlýða og þjóna honum

lýkur ævidögum þeirra í velsæld

og árum þeirra í unaði.

12En hlýði þeir ekki fara þeir yfir fljótið til undirheima

og deyja í vanþekkingu.

13Guðlausir í hjarta ala á heift,

þeir hrópa ekki á hjálp þegar hann fjötrar þá.

14Ævi þeirra lýkur í æskublóma

og lífi þeirra lýkur meðal hórsveina.

15Guð bjargar hinum þjáða með þjáningum hans,

opnar eyra hans með áþján.

16Þig dró hann einnig úr gini þjáninga,

út á víðlendi þar sem engin þrenging er.

Borð þitt er hlaðið feitmeti

17en þú færð fylli þína af sama dómi og guðlausir,

dómur og réttlæti halda þér í skefjum.

18En gættu þín, láttu ekki ginnast af allsnægtum

og ekki tælast af mútum.

19Mun auður þinn leysa þig úr nauðum

eða afl þitt reynt til fulls?

20Þráðu ekki nóttina

þegar þjóðir verða að halda frá byggðum sínum.

21Gættu þín, snúðu þér ekki að illu

því að þess vegna varstu reyndur með þjáningu.

22Guð er upphafinn í mætti sínum,

hver getur kennt eins og hann?

23Hver getur vísað honum til vegar?

Og hver getur sagt við hann: „Þú hefur breytt rangt.“

24Mundu að tigna verk hans

sem menn syngja lof.

25Allir menn horfa fagnandi á það,

hinn dauðlegi sér það úr fjarska.

26Guð er meiri en vér getum skilið,

óteljandi eru ár hans.

27Hann safnar saman vatnsdropum,

þeir hreinsast og verða regn

28sem streymir úr skýjunum

og fellur yfir mannfjöldann.

29Hver skilur rek skýjanna

og þrumugnýinn frá bústað hans?

30Hann breiðir um sig birtu sína

og hylur botn hafsins.

31Því að þannig dæmir hann þjóðirnar,

gefur þeim gnægð matar.

32Leiftrandi elding hylur lófa hans

og skipun hans beinir henni í mark.

33Þruma hennar segir frá honum

og búféð boðar komu hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help