Önnur Mósebók 18 - Biblían (2007)

Jetró hjá Móse

1Þegar Jetró, prestur í Midíanslandi, tengdafaðir Móse, heyrði um allt það sem Guð hafði gert fyrir Móse og lýð sinn, Ísrael, þegar Drottinn leiddi Ísrael út úr Egyptalandi

2tók Jetró, tengdafaðir Móse, með sér Sippóru, eiginkonu Móse, sem hann hafði sent aftur heim,

3og báða syni hennar. Annar hét Gersóm því að Móse hafði sagt: „Ég er aðkomumaður í framandi landi.“

4Hinn hét Elíeser „því að Guð föður míns var hjálp mín og frelsaði mig undan sverði faraós“.

5Jetró, tengdafaðir Móse, kom nú ásamt sonum hans og eiginkonu út í eyðimörkina þar sem Móse hafði búðir sínar við fjall Guðs.

6Hann lét flytja Móse þessi boð: „Ég, tengdafaðir þinn, er kominn til þín ásamt eiginkonu þinni og báðum sonum.“

7Móse gekk þá til móts við tengdaföður sinn, laut honum og kyssti hann. Þegar þeir höfðu heilsast gengu þeir inn í tjaldið.

8Móse skýrði tengdaföður sínum frá öllu sem Drottinn hafði gert faraó og Egyptum vegna Ísraels, frá öllu því mótlæti sem þeir höfðu orðið fyrir á leiðinni og hvernig Drottinn hafði bjargað þeim.

9Jetró gladdist yfir öllu hinu góða sem Drottinn hafði gert fyrir Ísrael þegar hann bjargaði honum úr greipum Egypta.

10Jetró sagði: „Lofaður sé Drottinn sem bjargaði ykkur úr greipum Egypta og faraós.

11Nú veit ég að Drottinn er öllum guðum meiri vegna þess að hann bjargaði þjóðinni undan kúgun Egypta sem sýndu Ísrael hroka.“

12Síðan færði Jetró, tengdafaðir Móse, Guði dýr að brennifórn og sláturfórn og Aron kom ásamt öllum öldungum Ísraels til að halda máltíð frammi fyrir augliti Drottins.

13Daginn eftir tók Móse sér sæti til að rétta í málum manna. Fólkið stóð frammi fyrir Móse frá morgni til kvölds.

14Þegar tengdafaðir Móse sá hve mörgu hann þurfti að sinna fyrir fólkið sagði hann: „Hvað er þetta sem þú ert að gera fyrir fólkið? Hvers vegna situr þú hér einn á meðan allt fólkið stendur frammi fyrir þér frá morgni til kvölds?“

15Móse svaraði tengdaföður sínum: „Fólkið kemur til mín til að leita svara hjá Guði.

16Eigi það í deilum kemur það til mín og ég sker úr milli manna og kunngjöri ákvæði og lög Drottins.“

17Þá sagði tengdafaðir Móse við hann: „Þú ferð ekki rétt að.

18Þú gerir bæði sjálfan þig og fólkið, sem hjá þér er, örþreytt. Þetta er þér of erfitt, þú getur ekki sinnt þessu einn.

19Hlustaðu nú á mig, ég skal gefa þér ráð og Guð verður með þér. Þú skalt sjálfur standa frammi fyrir Guði fyrir þjóðina og sjálfur leggja málin fyrir Guð.

20Þú skalt leggja þjóðinni á hjarta ákvæðin og lögin, vísa henni veginn sem hún á að ganga og sýna henni hvaða verk hún á að vinna.

21Þú skalt velja meðal allrar þjóðarinnar dugandi og guðhrædda menn, trausta menn sem ekki eru mútuþægir. Þú skalt setja þá yfir fólkið sem foringja yfir þúsund manna flokkum, yfir hundrað manna, fimmtíu manna og tíu manna flokkum.

22Þeir skulu rétta í málum fólksins hvenær sem þess gerist þörf. Öll stærri mál skulu þeir leggja fyrir þig en í öllum minni háttar málum skulu þeir dæma. Léttu þannig byrði þína og láttu þá bera hana með þér.

23Ef þú gerir þetta mun þér takast það sem Guð felur þér. Þá getur allt þetta fólk farið ánægt heim til sín.“

24Móse hlustaði á tengdaföður sinn og fór að öllu eins og hann hafði sagt.

25Móse valdi dugandi menn úr öllum Ísrael og gerði þá að höfðingjum yfir þjóðinni, foringjum þúsund manna, foringjum hundrað manna, fimmtíu manna og tíu manna.

26Þeir áttu að dæma fólkið hvenær sem þess gerðist þörf. Erfið mál lögðu þeir fyrir Móse en dæmdu sjálfir í öllum minni háttar málum.

27Síðan kvaddi Móse tengdaföður sinn og hann hélt heim til lands síns.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help