Þriðja Mósebók 23 - Biblían (2007)

Fyrirmæli um hátíðir

1Drottinn talaði við Móse og sagði:

2„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu: Þetta eru hátíðir Drottins sem þið skuluð kunngjöra sem helgar samkomur. Þetta eru hátíðir mínar:

Hvíldardagurinn

3Sex daga skal verk vinna en sjöunda daginn skal vera algjör hvíld, helg samkoma. Þá skal ekkert verk vinna. Þetta er hvíldardagur fyrir Drottin hvar sem þið búið.

Páskar og hátíð hinna ósýrðu brauða

4Þetta eru hátíðir Drottins, heilagar samkomur, sem þið skuluð kunngjöra, hverja á sínum ákveðna tíma:

5Fjórtánda dag fyrsta mánaðarins, í rökkrinu rétt fyrir sólsetur, eru páskar, Drottni til dýrðar.

6Fimmtánda dag sama mánaðar er hátíð hinna ósýrðu brauða Drottni til dýrðar. Þá skuluð þið eta ósýrt brauð í sjö daga.

7Fyrsta daginn skuluð þið halda heilaga samkomu. Þá skuluð þið ekkert verk vinna.

8Þið skuluð færa Drottni eldfórnir í sjö daga. Sjöunda daginn skuluð þið halda heilaga samkomu. Þá skuluð þið ekkert verk vinna.“

Frumgróðinn

9Drottinn talaði við Móse:

10„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu: Þegar þið komið inn í landið sem ég gef ykkur og skerið þar upp korn skuluð þið færa prestinum fyrsta kornknippið af uppskeru ykkar.

11Hann skal veifa því frammi fyrir augliti Drottins svo að þið hljótið velþóknun hans. Daginn eftir hvíldardaginn skal presturinn veifa því.

12Sama dag og þið veifið kornknippinu skuluð þið búa veturgamla sauðkind til brennifórnar handa Drottni.

13Auk hennar skuluð þið færa í kornfórn tvo tíundu úr efu af fínu mjöli blönduðu olíu. Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur. Dreypifórn með henni skal vera fjórðungur úr hín af víni.

14Þið skuluð hvorki eta brauð né ristað eða ferskt korn fyrr en daginn sem þið færið Guði ykkar þessa fórnargjöf. Þetta er ævarandi regla sem gildir fyrir ykkur, frá kyni til kyns, hvar sem þið búið.

Viknahátíðin

15Þið skuluð telja sjö heilar vikur frá deginum eftir hvíldardaginn þegar þið veifuðuð kornknippinu.

16Þið skuluð telja fimmtíu daga til dagsins eftir sjöunda hvíldardaginn. Þá skuluð þið færa Drottni nýja kornfórn.

17Þið skuluð hafa með ykkur að heiman tvö brauð til að veifa í frumgróðafórn handa Drottni. Þau skulu bökuð úr súrdeigi úr tveimur tíundu hlutum úr efu af fínu mjöli.

18Ásamt brauðinu skuluð þið færa fram sjö lýtalausar veturgamlar kindur, nautkálf eða uxa og tvo geithafra í brennifórn handa Drottni. Með þessum fórnum skal að auki færa kornfórn og dreypifórn. Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur.

19Búið einnig geithafur til syndafórnar og tvær veturgamlar kindur til lokasláturfórnar.

20Presturinn skal veifa þessu ásamt frumgróðabrauðinu frammi fyrir augliti Drottins. Þetta eru, ásamt báðum kindunum, heilagar gjafir til Drottins og koma í hlut prestsins.

21Þennan sama dag skuluð þið boða til heilagrar samkomu. Þá megið þið ekki vinna. Þetta er ævarandi regla, sem gildir hvar sem þið búið, frá einni kynslóð til annarrar.

22Er þið uppskerið jarðargróður ykkar þá skaltu ekki skera akur þinn út í hvert horn. Þú skalt ekki heldur tína afgang uppskeru þinnar en skilja hann eftir handa fátækum og útlendingum. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“

Nýársdagur

23Drottinn talaði við Móse og sagði:

24„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu: Fyrsta dag sjöunda mánaðarins skuluð þið halda helgihvíld, minningardag með hornablæstri, helga samkomu.

25Þá skuluð þið ekkert verk vinna en færa Drottni eldfórn.“

Friðþægingardagurinn

26Drottinn talaði við Móse og sagði:

27„Á tíunda degi í þessum sama sjöunda mánuði er friðþægingardagurinn. Þá skuluð þið halda helga samkomu, leggja á ykkur líkamleg meinlæti og færa Drottni eldfórn.

28Þennan dag skuluð þið ekkert verk vinna því að þetta er friðþægingardagur. Þá skal friðþægja fyrir ykkur frammi fyrir augliti Drottins, Guðs ykkar.

29Hver sá sem leggur ekki á sig meinlæti þennan dag skal upprættur úr þjóð sinni.

30Hvern þann sem verk vinnur þennan dag mun ég uppræta úr þjóð sinni.

31Þið skuluð ekkert verk vinna. Það er ævarandi regla sem gildir fyrir ykkur frá kynslóð til kynslóðar hvar sem þið búið.

32Þetta er algjör hvíldardagur fyrir ykkur og þá eigið þið að leggja meinlæti á líkama ykkar. Þið skuluð halda algjöra hvíld frá kvöldi níunda dags mánaðarins til kvöldsins eftir.“

Laufskálahátíðin

33Drottinn talaði við Móse og sagði:

34„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu: Á fimmtánda degi í þessum sjöunda mánuði hefst laufskálahátíðin og stendur í sjö daga Drottni til dýrðar.

35Fyrsta daginn er helg samkoma. Þá skuluð þið ekkert verk vinna.

36Í sjö daga skuluð þið færa Drottni eldfórn. Áttunda daginn skuluð þið halda helga samkomu og færa Drottni eldfórn. Það er hátíðisdagur og þið skuluð ekkert verk vinna.

37Þetta eru hátíðir Drottins sem þið skuluð boða sem daga ætlaða helgum samkomum. Þá skal færa Drottni eldfórnir, brennifórn, kornfórn, sláturfórn og dreypifórnir, hverja fórn á sínum degi.

38Auk þess eru hvíldardagar Drottins og þar að auki gjafir ykkar, heitfórnir og sjálfviljafórnir sem þið færið Drottni.

39Fimmtánda dag sjöunda mánaðarins, þegar þið flytjið afrakstur landsins heim, skuluð þið hefja hátíð Drottins sem skal standa sjö daga. Á fyrsta degi skal vera hvíld og einnig á áttunda degi.

40Fyrsta daginn skuluð þið sækja ávexti af þroskamiklum trjám, pálmablöð, greinar af þéttlaufguðum trjám og pílviði. Síðan skuluð þið gleðjast frammi fyrir augliti Drottins, Guðs ykkar, sjö daga.

41Þið skuluð halda þessa hátíð Drottni til dýrðar sjö daga hvert ár. Það skal vera ævarandi regla frá einni kynslóð til annarrar að halda þessa hátíð í sjöunda mánuðinum.

42Þið skuluð búa í laufskálum sjö daga. Allir innbornir menn í Ísrael skulu búa í laufskálum

43svo að niðjar ykkar fái að vita að ég lét ykkur búa í laufskálum þegar ég leiddi ykkur út úr Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“

44Þannig skýrði Móse Ísraelsmönnum frá því hvenær hátíðir Drottins skyldu haldnar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help