1Og fimmti engillinn básúnaði. Þá sá ég stjörnu er fallið hafði af himni ofan á jörðina og henni var fenginn lykillinn að brunni undirdjúpsins.
2Og stjarnan lauk upp brunni undirdjúpsins og lagði þaðan reyk eins og frá stórum bræðsluofni. Og sólin og loftið myrkvaðist af reyknum úr brunninum.
3Út úr reyknum komu engisprettur á jörðina og þær fengu sama mátt og sporðdrekar jarðarinnar.
4Og sagt var við þær að eigi skyldu þær spilla grasi jarðarinnar né nokkrum grænum gróðri né nokkru tré, engu nema þeim mönnum sem ekki hafa innsigli Guðs á enni sér.
5Engisprettunum var ekki leyft að deyða þá heldur skyldu þær láta þá kveljast í fimm mánuði. Undan þeim svíður eins og undan sporðdreka er hann stingur mann.
6Á þeim dögum munu mennirnir leita dauðans og ekki finna hann. Menn munu þrá að deyja en dauðinn mun forðast þá.
7Engispretturnar líktust hestum, búnum til bardaga. Á höfðinu báru þær eitthvað sem líktist kórónu úr gulli og ásjónur þeirra voru sem ásjónur manna.
8Þær höfðu hár eins og konur og tennur þeirra voru eins og í ljónum.
9Þær báru eins konar járnbrynjur og vængjaþyturinn frá þeim var eins og vagnagnýr þegar margir hestar bruna fram til bardaga.
10Þær hafa hala og brodda eins og sporðdrekar og í hölum þeirra býr máttur þeirra til að kvelja menn í fimm mánuði.
11Engill undirdjúpsins er konungur þeirra. Nafn hans er á hebresku Abaddón og á grísku heitir hann Apollýón.
12Fyrsta plágan er liðin hjá. Enn koma tvær aðrar eftir þetta.
13Og sjötti engillinn básúnaði. Þá heyrði ég rödd eina frá hornunum á gullaltarinu sem er frammi fyrir Guði.
14Og röddin sagði við sjötta engilinn sem hélt á básúnunni: „Leys þú englana fjóra sem bundnir eru við fljótið mikla, Efrat.“
15Og englarnir fjórir voru leystir. Þeim hafði verið haldið búnum til þessarar stundar, þessa dags, þessa mánaðar og þessa árs til þess að deyða þriðjung manna.
16Ég fékk að heyra fjölda riddarasveita þeirra. Tala þeirra var tvennar tíu þúsundir tíu þúsunda.
17Ég sá líka í sýninni hestana og þá sem riðu þeim: Þeir höfðu eldrauðar, svartbláar og brennisteinsgular brynjur og höfuð hestanna voru eins og ljónshöfuð. Af munnum þeirra gekk út eldur, reykur og brennisteinn.
18Í þessum þremur plágum, eldinum, reyknum og brennisteininum, sem út gekk af munni þeirra, fórst þriðjungur manna.
19Því að vald hestanna býr bæði í munni þeirra og í töglum þeirra því að tögl þeirra eru lík höggormum. Eru höfuð á þeim og með þeim granda þeir.
20Þeir menn sem ekki fórust í þessum plágum létu samt ekki af breytni sinni og vildu ekki hætta að tilbiðja illu andana og skurðgoðin úr gulli, silfri, eiri, steini og tré, sem hvorki geta séð, heyrt né gengið.
21Ekki létu þeir heldur af manndrápum sínum og töfrum, frillulífi sínu og þjófnaði.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.