Fyrri kroníkubók 2 - Biblían (2007)

Synir Ísraels

1Synir Ísraels voru: Rúben, Símeon, Leví og Júda, Íssakar og Sebúlon,

2Dan, Jósef og Benjamín, Naftalí, Gað og Asser.

Ættbálkur Júda. Niðjatal

3Synir Júda voru Er og Ónan og Sela. Kanverska konan, dóttir Súa, ól honum þessa þrjá syni. En Er, frumburður Júda, var illur í augum Drottins svo að hann lét hann deyja.

4Og Tamar, tengdadóttir Júda, ól honum Peres og Serak. Júda átti alls fimm syni.

5Synir Peresar voru Hesrón og Hamúl.

6Synir Seraks voru Simrí og Etan og Heman og Kalkól og Dara, alls fimm.

7Og sonur Simrí var Karmí og sonur Karmí var Akar sem steypti Ísrael í ógæfu með því að stela því sem hafði verið helgað banni.

8Og sonur Etans var Asarja.

9Hesrón fæddust synirnir Jerahmeel og Ram og Kelúbaí.

10Og Ram gat Ammínadab og Ammínadab gat Nahson, höfðingja Júdamanna,

11og Nahson gat Salma og Salma gat Bóas

12og Bóas gat Óbeð og Óbeð gat Ísaí

13og Ísaí gat Elíab, frumburð sinn, og þá Abínadab og Símea hinn þriðja,

14Netaneel hinn fjórða, Raddaí hinn fimmta,

15Ósem hinn sjötta, Davíð hinn sjöunda.

16Og systur þeirra voru Serúja og Abígail. Og synir Serúju voru Abísaí og Jóab og Asahel, þeir voru þrír.

17Og Abígail ól Amasa og faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti.

18Og Kaleb Hesrónsson gat dótturina Jeríót við Asúbu, konu sinni, og þetta voru synir hennar: Jeser og Sóbab og Ardon.

19En þegar Asúba var dáin tók Kaleb Efrat sér fyrir konu og hún ól honum Húr.

20Og Húr gat Úrí og Úrí gat Besaleel.

21Hesrón gekk síðan inn til dóttur Makírs, föður Gíleaðs. Hann hafði tekið hana sér fyrir konu þegar hann var sextíu ára. Hún ól honum Segúb

22og Segúb gat Jaír. Hann átti tuttugu og þrjár borgir í landi Gíleaðs

23en Gesúr og Aram tóku af þeim þorp Jaírs ásamt Kenat og þorpunum umhverfis, alls sextíu borgir. Allir þessir menn voru synir Makírs, föður Gíleaðs.

24Og eftir andlát Hesróns gekk Kaleb inn til Efrötu, konu Hesróns, föður hans. Og hún ól honum Asúr, föður Tekóa.

25Og synir Jerahmeels, frumburðar Hesróns, voru frumburðurinn Ram og Búna og Óren og Ósem og Ahía.

26Og Jerahmeel átti aðra konu sem hét Atara. Hún var móðir Ónams.

27Og synir Rams, frumburðar Jerahmeels, voru Maas og Jamín og Eker.

28Og synir Ónams voru Sammaí og Jada. Og synir Sammaí voru Nadab og Abísúr.

29Og kona Bísúrs hét Abíhaíl og hún fæddi honum Akban og Mólíd.

30Og synir Nadabs voru Seled og Appaín en Seled dó barnlaus.

31Sonur Appaíms var Jíseí og sonur Jíseí Sesan. Og sonur Sesans var Ahelaí.

32Og synir Jada, bróður Sammaí, voru Jeter og Jónatan en Jeter dó barnlaus.

33Og synir Jónatans voru Pelet og Sasa. Þetta voru synir Jerahmeels.

34Sesan átti enga syni, aðeins dætur. En Sesan átti egypskan þræl, Jarha að nafni.

35Sesan gaf Jarha, þræli sínum, dóttur sína fyrir konu og hún ól honum Attaí.

36Og Attaí gat Natan og Natan gat Sabat

37og Sabat gat Eflal og Eflal gat Óbeð

38og Óbeð gat Jehú og Jehú gat Asarja

39og Asarja gat Heles og Heles gat Eleasa

40og Eleasa gat Sísemaí og Sísemaí gat Sallúm

41og Sallúm gat Jekamja og Jekamja gat Elísama.

42Og synir Kalebs, bróður Jerahmeels, voru Mesa, frumburður hans, hann var faðir Sífs, og næstelsti sonur hans var Maresa, faðir Hebrons.

43Og synir Hebrons voru Kóra og Tappúa og Rekem og Sema.

44Og Sema gat Raham, föður Jorkeams, og Rekem gat Sammaí

45og sonur Sammaí var Maon og Maon var faðir Bet Súrs.

46Og Efa, hjákona Kalebs, ól Haran og Mósa og Gases. Og Haran gat Jehdaí.

47Og synir Jehdaí voru Regem og Jótam og Gesan og Pelet og Efa og Saaf.

48Og Maaka, hjákona Kalebs, ól Seber og Tírkana

49og hún ól einnig Saaf, föður Madmanna og Sefa, föður Makbena og Gíbea. Og Aksa var dóttir Kalebs.

50Þetta voru synir Kalebs.

Synir Húrs, frumburðar Efrata, voru Sóbal, faðir Kirjat Jearíms,

51Salma, faðir Betlehems, Haref, faðir Bet Gaders.

52Og Sóbal, faðir Kirjat Jearíms, átti að sonum Reaja og helming Manaktíta

53og helming ættbálkanna frá Kirjat Jearím, Jítríta og Pútíta og Súmatíta og Misraíta. Sóreatítar og Estoalítar eru komnir af þeim.

54Synir Salma, föður Betlehems, voru Netófatítar, Atrót Bet Jóab og helmingur Manatíta, það er Sóreítar,

55ættir Sifríta, sem búa í Jabes, Tíreatíta, Símeatíta og Súkatíta. Þeir voru Kínítar, komnir frá Hammat, föður Rekabs ættar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help