Hebreabréfið 5 - Biblían (2007)

1Sérhver æðsti prestur er tekinn úr flokki manna og settur í þágu manna til að þjóna frammi fyrir Guði og bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir.

2Hann getur verið mildur við fáfróða og vegvillta þar sem hann sjálfur er breyskur.

3Og sökum þess á hann að bera fram syndafórn, eigi síður fyrir sjálfan sig en fyrir lýðinn.

4Enginn tekur sér sjálfum þennan heiður, það er Guð sem kallar hann eins og Aron.

5Þannig tók Kristur sér ekki sjálfur þá vegsemd að verða æðsti prestur heldur sagði Guð við hann:

Þú ert sonur minn,

í dag hef ég fætt þig.

6Og á öðrum stað:

Þú ert prestur að eilífu

að hætti Melkísedeks.

7Á dögum jarðvistar sinnar bar Jesús með sárum andvörpum og tárum bænir fram fyrir þann sem megnaði að frelsa hann frá dauða og hann var bænheyrður sakir trúar sinnar.

8Þótt hann væri sonur Guðs lærði hann að hlýða með því að þjást.

9Þegar hann hafði fullnað allt varð hann öllum, sem honum fylgja, sá sem gefur eilíft hjálpræði,

10af Guði nefndur æðsti prestur að hætti Melkísedeks.

Gerist ekki sljó

11Um þetta höfum við langt mál að tala og ykkur torskilið af því að athygli ykkar er orðin sljó.

12Þó að þið tímans vegna ættuð að vera kennarar, þá hafið þið þess enn á ný þörf að einhver kenni ykkur undirstöðuatriði Guðs orða. Svo er komið fyrir ykkur að þið hafið þörf fyrir mjólk en ekki fasta fæðu.

13En hver sem á mjólk nærist er barn og skilur ekki boðskap réttlætisins.

14Fasta fæðan er fyrir fullorðna, fyrir þá sem jafnt og þétt hafa agað hugann til að greina gott frá illu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help