Galatabréfið 5 - Biblían (2007)

1Til frelsis frelsaði Kristur okkur. Standið því stöðug og látið ekki aftur leggja á ykkur ánauðarok.

Frelsuð til frelsis

2Takið eftir því sem ég, Páll, segi ykkur: Ef þið látið umskerast, þá gagnar Kristur ykkur ekkert.

3Og enn legg ég ríka áherslu á að sérhver sem lætur umskerast er skyldur til að halda allt lögmálið.

4Þið eruð orðin viðskila við Krist, þið sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þið eruð fallin úr náðinni.

5En við væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna sem er von okkar.

6Í samfélaginu við Krist Jesú gildir hvorki umskurn né yfirhúð heldur trú sem verkar í kærleika.

7Þið fóruð svo vel af stað. Hver hefur hindrað ykkur í að hlýða sannleikanum?

8Það kom ekki frá þeim sem kallaði ykkur.

9Lítið súrdeig sýrir allt deigið.

10Ég hef það traust til ykkar í Drottni að þið verðið sama sinnis og ég. Sá sem truflar ykkur mun fá sinn dóm, hver sem hann svo er.

11En hvað mig snertir, bræður mínir og systur, ef ég er enn þá að prédika umskurn, hví er þá enn verið að ofsækja mig? Þá væri hneyksli krossins tekið burt.

12Vel mættu þeir sem koma ykkur í uppnám aflima sig.

13Bræður og systur, þið voruð kölluð til að vera frjáls. Misnotið ekki frelsið í þágu eigin girnda heldur þjónið hvert öðru í kærleika.

14Allt lögmálið felst í þessu eina boðorði: „Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“

15En ef þið bítist og etið hvert annað upp, þá gætið þess að þið tortímið ekki hvert öðru.

16En ég segi: Lifið í andanum og þá fullnægið þið alls ekki girnd holdsins.

17Holdið girnist gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru til þess að þið gerið ekki það sem þið viljið.

18En ef þið leiðist af andanum þá eruð þið ekki undir lögmáli.

19Holdsins verk eru augljós: frillulífi, óhreinleiki, saurlífi,

20skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur,

21öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég ykkur fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir sem slíkt gera munu ekki erfa Guðs ríki.

22En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska,

23hógværð og sjálfsagi. Gegn slíku er lögmálið ekki.

24En þau sem trúa á Krist hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.

25Fyrst andinn hefur vakið okkur til lífs skulum við lifa í andanum.

26Verum ekki hégómagjörn svo að við áreitum og öfundum hvert annað.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help