1Þegar einhver ætlar að færa Drottni kornfórn á gjöf hans að vera fínt mjöl. Hann skal hella olíu yfir það og leggja reykelsi ofan á.
2Þá skal hann færa það sonum Arons, prestunum. Presturinn skal þá taka handfylli af mjölinu og olíunni ásamt öllu reykelsinu. Því næst skal presturinn láta minningarhluta fórnarinnar líða upp í reyk af altarinu.
Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
3Það sem eftir er af kornfórninni fá Aron og synir hans. Það er háheilagur hluti af eldfórnum Drottins.
4Þegar þú færir kornfórn, brauð bakað í ofni, skal hún vera úr fínu mjöli. Það skulu vera ósýrðar, kringlóttar kökur blandaðar olíu eða ósýrt flatbrauð smurt olíu.
5Sé gjöf þín brauð bakað á pönnu skal hún vera ósýrt brauð úr fínu mjöli blönduðu olíu.
6Þú skalt brjóta það í mola og hella olíu yfir. Það er kornfórn.
7Sé gjöf þín kornfórn úr suðupotti skal hún gerð úr fínu mjöli og olíu.
8Þú skalt færa Drottni kornfórn með fyrrgreindum hætti. Þú skalt færa hana prestinum og hann ber hana að altarinu.
9Presturinn skal taka minningarhluta kornfórnarinnar og láta hann líða upp í reyk af altarinu.
Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
10Það sem eftir er af kornfórninni fá Aron og synir hans. Það er háheilagur hluti af eldfórnum Drottins.
11Enga kornfórn, sem þið færið Drottni, má gera úr súrdegi því að þið megið hvorki láta súrdeig né hunang líða upp í reyk sem eldfórn til Drottins.
12Þið getið fært Drottni það sem gjöf af frumgróða en ekki má hefja það upp á altarið sem þekkan ilm.
13Sérhverja kornfórnargjöf þína skaltu salta. Þú skalt ekki láta salt sáttmála Guðs þíns vanta í þá kornfórn sem þú færir. Sérhverja gjöf þína skaltu færa fram til fórnar með salti.
14Ætlir þú að færa Drottni kornfórn af frumgróða skaltu færa frumgróðafórn af ferskum kornöxum, ristuðum yfir eldi, og af muldu fersku korni.
15Þú skalt hella olíu yfir og leggja reykelsi ofan á það. Þetta er kornfórn.
16Presturinn skal láta minningarhluta kornsins og olíunnar líða upp í reyk ásamt öllu reykelsinu.
Þetta er eldfórn handa Drottni.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.