Jobsbók 30 - Biblían (2007)

1En nú hlæja þeir að mér

sem eru mér yngri að árum,

mér þóttu feður þeirra ekki verðir þess

að vera með fjárhundum mínum.

2Að hvaða gagni kom mér kraftur þeirra?

Þróttur þeirra var þorrinn,

3örmagna af skorti og aðþrengdir af hungri

nöguðu þeir skrælþurrt landið

sem í gær var auðn og eyðimörk.

4Þeir söfnuðu hrímblöðku við þyrnirunna

og höfðu rætur til matar,

5voru flæmdir úr samfélaginu

og á eftir þeim var hrópað eins og þjófum.

6Í hlíðum fjallanna hírast þeir

í holum og hellum.

7Þeir kveina milli runnanna,

hópast saman undir þistlunum.

8Þetta er ærulaust fólk, nafnlaust fólk,

sem var hrakið út úr landinu.

9En nú kveður það um mig níðvísur

og fleiprar um mig.

10Það hefur óbeit á mér, forðast mig,

hikar ekki við að hrækja framan í mig.

11Þar sem Guð losaði bogastreng minn og niðurlægði mig

sleppti það fram af sér beislinu frammi fyrir mér.

12Frá hægri reis skari gegn mér,

kippti undan mér fótunum og lagði gegn mér óheillabrautir sínar.

13Þeir rufu stíg minn, unnu að falli mínu

og enginn aftraði þeim,

14þeir komu eins og gegnum breitt múrskarð

og byltust sem öldur innan um rústirnar.

15Skelfingar hafa snúist gegn mér,

virðingu minni var feykt burt eins og í stormi

og gæfa mín hvarf eins og ský.

16Nú fjarar líf mitt út,

dagar eymdarinnar hremma mig,

17um nætur nístast bein mín sundur,

nagandi kvölunum linnir ekki.

18Guð þreif í klæði mín af öllu afli,

herti að mér eins og hálsmál kyrtils,

19kastaði mér niður í eðjuna

og ég varð eins og mold og aska.

20Ég hrópa til þín en þú svarar ekki,

ég stend kyrr en þú verður mín ekki var.

21Þú ert orðinn grimmur við mig,

ræðst gegn mér af alefli,

22þú setur mig á bak vindinum

og lætur hann bera mig burt.

23Ég veit að þú sendir mig í dauðann,

á ákvörðunarstað allra sem lifa.

24En rétta menn ekki út höndina þegar allt hrynur,

hrópa menn ekki á hjálp í neyð sinni?

25Grét ég ekki yfir þeim sem áttu illa ævi,

hafði ég ekki meðaumkun með fátæklingum?

26Þegar ég bjóst við góðu kom illt,

ég vænti ljóss en þá kom myrkur.

27Innyfli mín ólga linnulaust,

eymdardagar bíða mín.

28Ég geng um svartur en þó ekki sviðinn af sól,

ég rís á fætur í söfnuðinum og hrópa á hjálp.

29Ég verð bróðir sjakala,

félagi strútsins.

30Hörund mitt er orðið svart

og beinin glóandi af sótthita.

31Hörpuleikur minn varð að sorgarljóði,

flautuleikurinn harmakvein.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help