Fjórða Mósebók 34 - Biblían (2007)

1Drottinn talaði til Móse og sagði:

2„Gefðu Ísraelsmönnum fyrirmæli og segðu við þá: Þegar þið komið inn í landið er það landið sem verður erfðaland ykkar, Kanaansland, þetta eru mörk þess:

3Suðurmörk ykkar skulu liggja frá Síneyðimörk með fram Edóm. Það verða suðurlandamæri ykkar frá enda salta hafsins að austan.

4Þá skulu landamæri ykkar liggja í boga sunnan við Sporðdrekastíg, liggja síðan áfram til Sín og stefna sunnan við Kades Barnea til Hasar Addar og þaðan til Asmón.

5Síðan skulu landamærin liggja í boga frá Asmón í átt til Egyptalandsár og alla leið til sjávar.

6Vesturlandamæri ykkar skulu vera hafið mikla. Það skulu vera vesturlandamæri ykkar.

7Norðurlandamæri ykkar skulu vera: Frá hafinu mikla skuluð þið draga línu til fjallsins Hór

8og frá fjallinu Hór til Lebó Hamat. Landamærin skulu liggja til Sedad,

9síðan skulu þau liggja til Sífrón og þaðan til Hasar Enan.

10Þið skuluð merkja austurlandamæri ykkar með línu frá Hasar Enan til Sefam,

11síðan skulu landamærin liggja niður frá Sefam til Ribla austan við Aín. Landamærin skulu því næst liggja niður eftir og nema við fjallsöxlina við Kinneretvatn austanvert.

12Loks skulu landamærin liggja niður að Jórdan og þaðan í stefnu að salta hafinu.

Þannig skal landið, sem þið fáið, vera afmarkað af landamærum sínum á alla vegu.“

13Móse gaf Ísraelsmönnum fyrirmæli og sagði:

„Þetta er landið sem þið eigið að skipta á milli ykkar í erfðalönd með hlutkesti og Drottinn hefur boðið að verði fengið þessum níu ættbálkum og hálfum ættbálki að auki.

14Því að ættbálkur sona Rúbens, hver ætt fyrir sig, og ættbálkur sona Gaðs, hver ætt fyrir sig, ásamt hálfum ættbálki niðja Manasse, hafa þegar tekið við erfðalöndum sínum.

15Þessir tveir og hálfur ættbálkur hafa tekið við erfðalandi sínu hinum megin við Jórdan, austan við Jeríkó.“

16Drottinn sagði við Móse:

17„Þetta eru nöfn þeirra manna sem eiga að skipta landinu í erfðalönd á milli ykkar: Eleasar prestur og Jósúa Núnsson

18og að auki skuluð þið velja einn höfðingja frá hverjum ættbálki til þess að skipta landinu í erfðalönd.

19Þetta eru nöfn þessara manna: Kaleb Jefúnneson frá ættbálki Júda,

20Samúel Ammíhúdsson frá ættbálki Símeonssona,

21Elídad Kíslonsson frá ættbálki Benjamíns,

22höfðinginn Búkkí Joglíson frá ættbálki Dansniðja.

23Frá niðjum Jósefs: höfðinginn Kamúel Efóðsson frá ættbálki Manasseniðja

24og höfðinginn Kemúel Siftansson frá ættbálki Efraímsniðja,

25höfðinginn Elísafan Parnaksson frá ættbálki Sebúlonssona,

26höfðinginn Paltíel Asansson frá ættbálki Íssakarssona,

27höfðinginn Akíhúð Selomíson frá ættbálki Asserssona,

28höfðinginn Pedahel Ammíhúdsson frá ættbálki Naftalísona.

29Það voru þessir menn sem Drottinn bauð að skipta landinu í erfðalönd á milli Ísraelsmanna í Kanaanslandi.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help