1En Agrippa sagði við Pál: „Nú er þér leyft að tala þínu máli.“ Páll rétti þá út höndina og bar fram vörn sína:
2„Lánsamur þykist ég, Agrippa konungur, að eiga í dag í þinni áheyrn að verja mig gegn öllu því sem Gyðingar saka mig um,
3því heldur sem þú þekkir alla siðu Gyðinga og ágreiningsmál. Því bið ég þig að hlýða þolinmóður á mig.
4Allir Gyðingar þekkja líf mitt frá upphafi, hvernig ég hef lifað með þjóð minni, fyrst í æsku og síðan í Jerúsalem.
5Það vita þeir um mig, vilji þeir unna mér sannmælis, að ég var farísei frá fyrstu tíð, fylgdi strangasta flokki trúarbragða okkar.
6Og hér stend ég nú lögsóttur af því að ég trúi því sem Guð hét forfeðrum vorum
7og vorar tólf kynkvíslir vona að öðlast með því að dýrka Guð án afláts nótt sem dag. Fyrir þessa von er ég nú ákærður, konungur, og það af Gyðingum.
8Hvers vegna teljið þið það ótrúlegt að Guð veki upp dauða?
9Sjálfur taldi ég mér skylt að vinna af öllu megni gegn nafni Jesú frá Nasaret.
10Það gerði ég og í Jerúsalem, hneppti marga hinna heilögu í fangelsi með valdi frá æðstu prestunum og galt því jákvæði að þeir væru teknir af lífi.
11Og í öllum samkundunum reyndi ég þrásinnis með pyndingum að neyða þá til að afneita trú sinni. Svo freklega æddi ég gegn þeim að ég fór til borga erlendis að ofsækja þá.
12Þá er ég var á leið til Damaskus slíkra erinda með vald og umboð frá æðstu prestunum
13sá ég, konungur, á veginum um miðjan dag ljós af himni sólu bjartara leiftra um mig og þá sem mér voru samferða.
14Við féllum allir til jarðar og ég heyrði rödd er sagði við mig á hebresku: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Erfitt verður þér að spyrna móti broddunum.
15En ég sagði: Hver ert þú, herra? Og Drottinn sagði: Ég er Jesús sem þú ofsækir.
16Rís nú upp og statt á fætur. Ég birtist þér til þess að þú þjónir mér og segir frá því að þú hefur séð mig bæði nú og síðar er ég mun birtast þér.
17Ég mun senda þig til Gyðinga og heiðingja og vernda þig fyrir þeim.
18Þú átt að opna augu þeirra og snúa þeim frá myrkri til ljóss, frá valdi Satans til Guðs, til þess að þeir trúi á mig og öðlist fyrirgefningu syndanna og arf með þeim sem helgaðir eru.
19Fyrir því gerðist ég, Agrippa konungur, eigi óhlýðinn hinni himnesku vitrun
20heldur boðaði ég fyrst þeim í Damaskus og í Jerúsalem, síðan um alla Júdeubyggð og heiðingjunum að taka sinnaskiptum og snúa sér til Guðs og sýna það í verki.
21Sakir þessa gripu Gyðingar mig í helgidóminum og reyndu að ráða mér bana.
22En Guð hefur hjálpað mér og því stend ég allt til þessa dags og vitna bæði fyrir háum og lágum. Mæli ég ekki annað en það sem bæði spámennirnir og Móse hafa sagt að verða mundi,
23að Kristur ætti að líða og fyrstur rísa upp frá dauðum og boða bæði Gyðingum og heiðingjunum ljósið.“
Páll skírskotar til Agrippu24Þegar Páll var hér kominn í vörn sinni segir Festus hárri raustu: „Óður ert þú, Páll. Þitt mikla bókvit gerir þig óðan.“
25Páll svaraði: „Ekki er ég óður, göfugi Festus, heldur mæli ég sannleiks orð af fullu viti.
26Konungur kann skil á þessu og við hann tala ég af einurð. Eigi ætla ég að honum hafi dulist neitt af þessu enda hefur það ekki gerst í neinum afkima.
27Trúir þú, Agrippa konungur, spámönnunum? Ég veit að þú gerir það.“
28Þá sagði Agrippa við Pál: „Með litlu hyggur þú að geta gert mig kristinn.“
29En Páll sagði: „Þess bið ég Guð, hvort sem lengur dregst eða skemur, að ekki einungis þú, heldur og allir, sem til mín heyra í dag, verði slíkir sem ég er að frátöldum fjötrum mínum.“
30Þá stóð konungur upp og landstjórinn, svo og Berníke og þeir er þar sátu með þeim.
31Þegar þau voru farin sögðu þau sín á milli: „Þessi maður fremur ekkert sem varðar dauða eða fangelsi.“
32En Agrippa sagði við Festus: „Þennan mann hefði mátt láta lausan ef hann hefði ekki skotið máli sínu til keisarans.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.