1Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir okkar heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni, Fílemon,
2svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum sem kemur saman í húsi þínu.
3Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Þakkir og fyrirbæn4Ég þakka Guði mínum ávallt er ég minnist þín í bænum mínum
5því að ég heyri um trú þína á Drottni Jesú og um kærleika þinn til hinna heilögu.
6Ég bið að það sem þú átt og gefur í trúnni styrki þig til þess að skilja allt hið góða sem veitist í Kristi.
7Mikla gleði og uppörvun hef ég þegið sakir kærleika þíns því að þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu heilagra.
Tak á móti honum8Þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það sem skylt er,
9þá fer ég heldur bónarveg vegna kærleika þíns þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú.
10Ég bið þig þá fyrir barnið mitt sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus.
11Hann var þér áður óþarfur en er nú þarfur bæði þér og mér.
12Ég sendi hann til þín aftur og er hann þó sem hjartað í brjósti mér.
13Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér til þess að hann í þinn stað væri mér til hjálpar í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins.
14En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gera til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung heldur af fúsum vilja.
15Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega,
16ekki lengur eins og þræli heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér bæði sem maður og kristinn.
17Ef þú því telur mig bróður þinn í trúnni, þá tak þú á móti honum eins og væri það ég sjálfur.
18En hafi hann eitthvað gert á hluta þinn eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings.
19Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun greiða. Að ég ekki nefni við þig að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig.
20Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists.
21Fullviss um hlýðni þína rita ég til þín og veit að þú munt gera jafnvel fram yfir það sem ég mælist til.
22En hafðu líka til gestaherbergi handa mér því að ég vona að þið öðlist þá bænheyrslu að fá mig aftur.
Kveðjur23Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. Sömuleiðis
24Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir.
25Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.