Títusarbréfið 3 - Biblían (2007)

Góð verk

1Minn þau á að lúta höfðingjum og yfirvöldum, vera hlýðin og reiðubúin til sérhvers góðs verks,

2lastmæla engum, vera friðsöm, sanngjörn og sýna öllum mönnum vinsemd.

3Því að þeir voru tímarnir að við vorum einnig óskynsöm, óhlýðin, villuráfandi, í ánauð hvers konar fýsna og lostasemda. Við ólum aldur okkar í illsku og öfund, vorum andstyggileg, hötuðum hvert annað.

4En er gæska Guðs, frelsara vors, birtist og elska hans til mannanna,

5þá frelsaði hann okkur, ekki vegna réttlætisverkanna, sem við höfðum unnið, heldur frelsaði hann okkur af miskunn sinni. Það gerði hann í þeirri laug endurfæðingar og endurnýjunar heilags anda sem

6hann lét ríkulega yfir okkur streyma sakir Jesú Krists, frelsara vors.

7Þannig erum við réttlætt fyrir náð hans og urðum í voninni erfingjar eilífs lífs.

8Það orð er satt, og á þetta vil ég að þú leggir alla áherslu til þess að þau sem fest hafa trú á Guð láti sér umhugað um að stunda góð verk. Þetta er gott og mönnum nytsamlegt.

9En forðast þú heimskulegar þrætur og ættartölur, deilur og lögmálsstælur. Þær eru gagnslausar og til einskis.

10Þrætumanni skalt þú sneiða hjá er þú hefur einu sinni eða tvisvar áminnt hann.

11Þú veist að slíkur maður er rangsnúinn og syndugur. Hann er sjálfdæmdur.

Lokaorð

12Þegar ég sendi Artemas til þín eða Týkíkus kom þá sem fyrst til mín í Nikópólis því að þar hef ég ásett mér að hafa vetrarvist.

13Greið sem best för þeirra Senasar lögvitrings og Apollóss til þess að þá bresti ekkert.

14En okkar menn eiga og að læra að stunda góð verk hvar sem þess er þörf til þess að þeir séu ekki ávaxtalausir.

15Allir sem hjá mér eru senda þér kveðju. Heilsa þeim sem í trúnni elska mig.

Náð sé með yður öllum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help