Síraksbók 19 - Biblían (2007)

1Vínhneigður verkamaður efnast ekki,

sá sem lætur sér fátt um smátt verður örsnauður.

2Vín og víf leiða skynsama afvega,

sá sem leggur lag sitt við skækjur forherðist æ meir.

3Hann verður rotnun og möðkum að bráð,

hinn forherti mun farast.

4Óvitur er auðtrúa maður,

sá sem syndgar bakar sjálfum sér tjón.

5Meinfýsinn maður mun sjálfur hljóta dóm.

Sá sem stenst nautnir kórónar líf sitt

og sá sem stýrir tungu sinni fær að lifa í friði.Um lausmælgi

6Sá er illu firrtur sem hatar lausmælgi.

7Hafðu aldrei neitt eftir öðrum,

á því munt þú aldrei tapa.

8Berðu ekkert út, hvorki um vin né óvin,

segðu ei frá neinu nema synd sé að þegja.

9Ella mun sá er til þín heyrir varast þig,

fella á þig hatur fyrr eða síðar.

10Berist þér kvittur hafðu hann með þér í gröfina,

kvíddu engu, það sprengir þig ekki.

11Heimskinginn fær hríðir ef hann heyrir orðróm,

jóðsótt líkt og kona við barnsburð.

12Eins og ör í lend manns,

svo er slúður sem heimskingi elur á.

13Inn vin þinn eftir hvort hann hafi gert það,

ef svo, lát hann eigi gera það aftur.

14Spyr granna þinn út í hvort hann hafi sagt það,

hafi hann sagt það, leyf honum eigi að endurtaka það.

15Inn vin þinn eftir, því að oft kviknar óhróður,

eigi skaltu öllu trúa sem talað er.

16Títt hrata vanhugsuð orð af vörum,

hver er sá sem ei hefur syndgað í orði?

17Spyr nágranna þinn grannt áður en þú álasar honum,

lát lögmál Hins hæsta gilda án þess að reiðast.

18Guðsótti er upphaf þess að verða Guði þekkur

og spekin veitir hlutdeild í kærleika hans.

19Að kunna boðorð Guðs er ögun sem veitir líf,

þeir sem iðka það sem honum þóknast

munu njóta ávaxta af lífsins tré.Sönn speki og fölsk

20Öll speki felst í að óttast Drottin,

öll speki hlýtur að uppfylla lögmálið

og það er að þekkja almætti hans.

21Ef þjónn segir við húsbónda sinn:

„Ég vil ekki gera eins og þú óskar,“

en framkvæmir það samt síðar

ergir hann þann sem fæðir hann.

22Þekking á illsku er engin speki,

ráð syndara eru ekki hyggindi.

23Til eru þau hyggindi sem vekja viðbjóð,

til eru fávísir sem brestur speki.

24Betri er guðhræddur og greindarlítill

en ljóngáfaður sem lögmálið brýtur.

25Til er skörp ráðsnilld sem ranglát er

og margir beita brögðum er dóm skal fella.

26Svo er illmennið sem ber yfirbragð mæðu,

en innra er það fullt svika.

27Niðurlútur er hann og læst ekkert heyra,

hann ræðst að þér þegar minnst varir.

28Hindri hann magnleysi frá því að syndga

mun hann þó skaða þig fái hann færi.

29Af útliti má manninn þekkja,

hygginn má kenna af framkomu sinni.

30Klæðnaður manns, göngulag og hlátur

gefa til kynna hvern mann hann geymir.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help