Síðari kroníkubók 13 - Biblían (2007)

Abía konungur Júda

1Á átjánda stjórnarári Jeróbóams konungs varð Abía konungur í Júda.

2Hann ríkti þrjú ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Míkaja Úríelsdóttir frá Gíbeu.

Til ófriðar kom milli Abía og Jeróbóams.

3Abía hóf stríðið með her þjálfaðra stríðsmanna, fjögur hundruð þúsund manna einvalaliði. Jeróbóam fylkti gegn honum átta hundruð þúsund manna úrvalsliði, þjálfuðum stríðsmönnum.

4Þá tók Abía sér stöðu á tindi Semaraímfjalls, sem er í Efraímsfjöllum, og hrópaði: „Jeróbóam og allur Ísrael, hlýðið á mig.

5Vitið þið ekki að Drottinn, Guð Ísraels, hefur veitt Davíð og niðjum hans konungdóm yfir Ísrael um alla framtíð með saltsáttmála?

6Jeróbóam Nebatsson, þjónn Salómons, sonar Davíðs, reis samt upp og gerði uppreisn gegn herra sínum.

7Lausingjar og hrakmenni söfnuðust að honum og þeir urðu Rehabeam, syni Salómons, öflugri. Rehabeam var ungur og óharðnaður og gat ekki veitt þeim viðnám.

8En nú ætlið þið að ráðast gegn konungdómi Drottins, sem er í hendi niðja Davíðs, af því að þið eruð fjölmennir og gullkálfarnir, sem Jeróbóam gerði að guðum ykkar, eru hjá ykkur.

9Hafið þið ekki rekið burt presta Drottins, niðja Arons, og Levítana og skipað ykkur presta sjálfir eins og þjóðir í öðrum löndum? Sérhver, sem kom með ungt naut og sjö geithafra til þess að láta setja sig í prestsembætti, varð prestur falsguðanna.

10En Drottinn er Guð okkar og við höfum ekki yfirgefið hann. Þeir prestar, sem þjóna Drottni, eru niðjar Arons og Levítarnir eru í þjónustu hans.

11Morgun eftir morgun og kvöld eftir kvöld færa þeir Drottni brennifórnir og ilmandi reykelsi og raða brauðum á hið hreina borð. Þeir kveikja á lömpum gullljósastikunnar kvöld eftir kvöld. Því að við fylgjum fyrirmælum Drottins, Guðs okkar, en þið hafið snúið baki við honum.

12Takið eftir: Hinn sanni Guð er með okkur í broddi fylkingar. Prestar hans eru hér með lúðrana, reiðubúnir að blása til atlögu. Ísraelsmenn, berjist ekki gegn Drottni, Guði feðra ykkar, því að ykkur mun ekkert verða ágengt.“

13Jeróbóam hafði látið hluta liðs síns fara umhverfis Júdamenn og koma aftan að þeim. Meginherinn stóð því frammi fyrir Júdamönnum en launsátursliðið að baki þeim.

14Þegar Júdamenn sneru sér við sáu þeir að þeim var bardagi búinn bæði að baki og að framan. Þá ákölluðu þeir Drottin og prestarnir blésu í lúðrana.

15Því næst lustu Júdamenn upp herópi. Á meðan Júdamenn hrópuðu sigraði Drottinn Jeróbóam og allan Ísrael frammi fyrir Abía og Júdamönnum.

16Ísraelsmenn lögðu á flótta undan Júdamönnum en Guð seldi þá í hendur þeim

17og Abía og her hans vann þeim mikið tjón. Af Ísraelsmönnum féllu fimm hundruð þúsund úrvals hermenn.

18Þannig voru Ísraelsmenn niðurlægðir þessu sinni en Júdamenn reyndust yfirsterkari af því að þeir studdust við Drottin, Guð feðra sinna.

19Abía rak flótta Jeróbóams og vann af honum nokkrar borgir: Betel, Jesana og Efron, ásamt þorpum þeirra borga.

20Jeróbóam endurheimti ekki völd sín meðan Abía lifði. Loks laust Drottinn hann til bana.

21En Abía varð voldugur, tók sér fjórtán eiginkonur og eignaðist tuttugu og tvo syni og sextán dætur.

Dauði Abía

22Það sem ósagt er af sögu Abía, bæði af verkum hans og orðum, er skráð í skýringariti Iddó spámanns.

23Abía var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum. Hann var grafinn í borg Davíðs. Asa, sonur hans, varð konungur eftir hann. Friður ríkti í landinu tíu ár á stjórnartíma hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help