1Þú, mannssonur, spá fyrir fjöllum Ísraels og seg: Ísraelsfjöll. Heyrið orð Drottins.
2Svo segir Drottinn Guð: Fjandmennirnir hafa sagt um ykkur: Ævarandi auðn. Hún er orðin okkar eign.
3Flyttu því spámannlegan boðskap og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Ykkur hefur verið eytt og að ykkur veist úr öllum áttum, svo að þið eruð orðin eign annarra þjóða. Fólk hefur haft ykkur að háði og spotti.
4Ísraelsfjöll! Heyrið því orð Drottins Guðs: Svo segir Drottinn Guð við fjöllin og hæðirnar, gilin og dalina, auðu rústirnar og yfirgefnu borgirnar sem urðu þjóðunum umhverfis að herfangi og spotti.
5Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Af brennandi ákafa mun ég tala gegn hinum þjóðunum og öllum Edóm. Þær hafa slegið eign sinni á land mitt og rekið íbúana burt, illkvittnar og fullar fyrirlitningar, svo að þær geti rænt þá.
6Spáðu um land Ísraels og segðu við fjöllin og hæðirnar, gilin og dalina: Svo segir Drottinn Guð: Ég hef talað af ástríðufullri heift af því að þið urðuð að bera niðurlægingu annarra þjóða.
7Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Ég hef svarið þess eið með uppréttri hendi að þjóðirnar umhverfis ykkur verði að bera sína niðurlægingu.
8En þið, Ísraelsfjöll, munuð skjóta greinum og bera ávexti handa þjóð minni, Ísrael, því að hún kemur brátt.
9Nú kem ég til ykkar og sný mér að ykkur og þá verðið þið bæði ræktuð og í ykkur sáð.
10Ég mun fjölga íbúum ykkar, öllum Ísrael. Aftur verður búið í borgunum og rústirnar verða endurreistar.
11Ég mun fjölga mönnum og skepnum á ykkur sem munu verða frjósamar og margfaldast. Og ég mun láta menn setjast að á ykkur eins og áður og láta ykkur farnast betur en á fyrri tíð. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn.
12Ég mun láta þjóð mína, Ísrael, ganga á ykkur. Þeir munu taka ykkur til eignar og þið verðið erfðaland þeirra og munuð aldrei gera þá barnlausa framar.
13Svo segir Drottinn Guð: Um þig er sagt: Þú ert mannæta og gerðir þjóð þína barnlausa.
14Þess vegna segi ég: Þú skalt ekki eta menn framar og þú skalt ekki framar svipta þjóð þína börnum sínum, segir Drottinn Guð.
15Ég mun hvorki láta þig heyra smánaryrði frá öðrum ríkjum framar né háð annarra þjóða. Þú skalt ekki framar svipta þjóð þína börnum sínum, segir Drottinn Guð.
Endurreisn Ísraels16Orð Drottins kom til mín:
17Mannssonur, þegar Ísraelsmenn bjuggu í landi sínu saurguðu þeir það með breytni sinni og verkum. Breytni þeirra var í mínum augum eins og óhreinleiki konu sem hefur á klæðum.
18Þá jós ég heift minni yfir þá vegna blóðsins sem þeir höfðu úthellt í landinu og af því að þeir höfðu saurgað það með skurðgoðum sínum.
19Ég tvístraði þeim meðal annarra þjóða, þeim var dreift um löndin. Ég dæmdi þá eftir breytni þeirra og verkum.
20Og hvar sem þeir komu til þjóðanna vanhelguðu þeir mitt heilaga nafn. Því að um þá var sagt: Þessir menn eru þjóð Drottins en samt urðu þeir að yfirgefa land hans.
21Ég tók þetta nærri mér vegna míns heilaga nafns sem Ísraelsmenn höfðu vanhelgað meðal þjóðanna sem þeir komu til.
22Segðu því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Það er ekki ykkar vegna að ég læt til mín taka, Ísraelsmenn, heldur vegna míns heilaga nafns sem þið hafið vanhelgað meðal þjóðanna sem þið eruð komnir til.
23Ég mun helga mitt mikla nafn sem hefur verið vanhelgað á meðal þjóðanna því að þið hafið vanhelgað það á meðal þeirra. Þjóðirnar munu skilja að ég er Drottinn, segir Drottinn Guð, þegar ég birti heilagleika minn á ykkur fyrir augum þeirra.
24Ég mun sækja ykkur frá öllum þjóðunum og safna ykkur saman úr öllum löndunum og flytja ykkur til ykkar eigin lands.
25Ég mun dreypa á ykkur hreinu vatni svo að þið verðið hreinir. Ég mun hreinsa ykkur af öllum óhreinindum ykkar og skurðgoðum.
26Ég mun gefa ykkur nýtt hjarta og leggja ykkur nýjan anda í brjóst. Ég mun taka steinhjartað úr líkama ykkar og gefa ykkur hjarta af holdi.
27Ég mun leggja ykkur anda minn í brjóst svo að þið farið að boðum mínum og haldið reglur mínar og framfylgið þeim.
28Þið skuluð búa í landinu sem ég gaf feðrum ykkar og þið skuluð vera mín þjóð og ég skal vera Guð ykkar.
29Ég mun frelsa ykkur frá öllu því sem þið hafið saurgast af. Þá mun ég kalla á kornið og láta það spretta en ekki senda hungursneyð gegn ykkur.
30Ég mun einnig auka ávöxt trjánna og afrakstur akranna svo að þið þurfið ekki framar að þola smánaryrði frá öðrum þjóðum vegna hungurs.
31Þá munuð þið minnast ykkar illu breytni og vondu verka og ykkur mun bjóða við sjálfum ykkur vegna afbrota ykkar og illvirkja.
32Það er ekki ykkar vegna að ég læt til mín taka, segir Drottinn Guð, það skuluð þið vita. Blygðist ykkar og verið sneyptir vegna breytni ykkar, Ísraelsmenn.
33Svo segir Drottinn Guð: Daginn sem ég hreinsa ykkur af öllum afbrotum ykkar mun ég láta fólk setjast aftur að í borgunum og það sem lagt var í rúst verður endurreist.
34Hið eydda land verður aftur ræktað í stað þess að liggja í auðn fyrir augum allra sem eiga leið hjá.
35Þeir munu segja: Þetta land, sem var eytt, er orðið eins og garðurinn Eden, borgirnar, sem voru lagðar í rúst, eyddar mönnum og rifnar niður, eru nú víggirtar og byggðar.
36Þá munu þjóðirnar, sem eftir eru umhverfis ykkur, skilja að ég, Drottinn, endurreisi það sem rifið hefur verið niður og gróðurset í það land sem hefur verið eytt. Ég, Drottinn, hef talað og ég geri það sem ég hef sagt.
37Svo segir Drottinn Guð: Ég mun einnig leyfa Ísraelsmönnum að leita svara hjá mér um það að ég fjölgi fólkinu eins og hjörð.
38Borgirnar, sem voru lagðar í rúst, skulu fyllast af hjörðum manna eins og Jerúsalem af fé á hátíðum, fé helguðu til fórna. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.