Sálmarnir 149 - Biblían (2007)

1Hallelúja.

Syngið Drottni nýjan söng,

lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúfastra.

2Ísrael gleðjist yfir skapara sínum,

börn Síonar fagni konungi sínum,

3lofi nafn hans með dansi,

flytji honum lofgjörð með bumbu og gígju.

4Því að Drottinn hefur þóknun á lýð sínum,

krýnir hrjáða sigri.

5Hinir trúuðu fagni í dýrðarljóma,

hrópi gleðióp í hvílum sínum

6með lofgjörð Guðs á tungu

og tvíeggjað sverð í hendi

7til hefnda á öðrum þjóðum,

refsingar framandi þjóðflokkum,

8til að hlekkja konunga þeirra

og leggja höfðingja þeirra í járn.

9Þeir skulu fullnægja á þeim skráðum dómi.

Það er til vegsemdar öllum sem honum eru trúir.

Hallelúja.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help