Sakaría 5 - Biblían (2007)

Sjötta sýn: Fljúgandi bókfell

1Enn hóf ég upp augu mín og sjá: Þar var bókfell á flugi.

2Og hann sagði við mig: „Hvað sérðu?“ En ég svaraði: „Ég sé bókfell á flugi, tuttugu álna langt en tíu álna breitt.“

3Hann sagði við mig: „Þetta er bölvunin sem fer yfir landið allt. Öðrum megin á það er skráð að öllum þjófum sé enn órefsað en hinum megin að öllum meinsærismönnum sé enn óhegnt.“

4Bókfellið hef ég sent, segir Drottinn allsherjar, svo að það lendi í húsi þjófsins og þess sem sekur er um meinsæri við mig og staðnæmist þar og gereyði þar jafnt viði sem veggjum.

Sjöunda sýn: Kona í keri

5Þá gekk fram engillinn, viðmælandi minn, og sagði: „Líttu nú upp og sjáðu hvað nálgast.“

6„Hvað er það?“ spurði ég. Og hann svaraði: „Þetta efuker sem nálgast,“ sagði hann, „er sekt þeirra í landinu öllu.“

7Og þá lyftist blýlokið af efunni og sat kona niðri í kerinu.

8„Þetta,“ sagði hann, „er Illskan.“ Og hann þrýsti henni niður í kerið og setti blýlokið yfir.

9Enn leit ég upp og sá nú tvær konur birtast. Þær höfðu vængi sem storkar og stóð vindur undir á báða vegu. Og á milli sín hófu þær efuna á loft.

10Ég spurði engilinn, viðmælanda minn: „Hvert ætla þær með efuna?“

11Hann svaraði: „Til að reisa henni hús í Sínearlandi og að því loknu munu þær setja efuna þar á stall.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help